Ég missti prófið 4. jan, Ætlaði að ná í teinið 4. apríl,
en nei þá var búið að skrá það inn að ég hafi skilað teininu inn 9, jan
þannig ég þurfti að bíða í 5 daga til viðbótar eftir prófinu.
Í gærkvöldi var ég stoppaður útaf bláu Angel Eyes ljósunum á bílnum,
Ég var spurður um brotaferil og hluti sem komu því ekkert við.
Löggan hringdi inn og fékk allar upplísingar um mig, og kom í ljós að ég
væri ennþá próflaus

, því ég hefði ekki farið í prófið aftur,
og þar með var teinið tekið af mér aftur.
Þetta finnst mér virkilega lélegt af þeim því að mér var ekki sagt að ég
þirfti að taka prófið aftur, mér var bara rétt
teinið og allt í gúddí niðrá sýslumann þegar ég sótti það!!
Ég er ekki sáttur með þessi vinnubrögð, þetta fer beint í lögfræðing,
ég tek þessu ekki þegjandi og hljóðalaust. ég veit um allavena tvö svona
dæmi til viðbótar í umdæmi keflavíkurlögreglu!
Nú langar mig að sjá ykkar álit á þessu máli!!
Ég missti prófið í 3 mánuði seinasta sumar. Ég þurfti ekki að taka prófið né fara í skólann aftur. Og ég er ekki með fullnaðarskirteini