Hum jám, mér finnst fyrirtæki skemma dáldið jólin.
Væri miklu skemmtilegra ef það kæmi jólasprengja í byrjun desember, þ.e. að allir myndu byrja á sama tíma með hvelli.
Síðustu ár þá hef ég persónulega átt mjög erfitt með að komast í jólastuð... maður kemst í stuð áður en jólin koma og þessi mikla tilhlökkun bara kemur ekki.
Mér finnst líka RUGL hvernig gjafirnar og allt í kringum þetta er orðið. Það ætlast allir til þess að maður gefi einhverjar svaka gjafir og maður er á hausnum frameftir ári.
Ég ætla að vera á móti straumnum þetta árið,
gefa kærustunni minni almennilega gjöf og vera mjög hóflegur á rest, þoli ekki þegar það er búið að ákveða að maður á að eyða hverri einustu krónu í jólagjafir... ekki ætlast ég til þess að fá einhverjar svaka gjafir. Fjölskyldan mín er allavega löngu komin í ruglið hvað gjafir varðar og auðvitað "á maður að taka þátt".
Annars eins og aðrir hér þá er maður vanur að vinna eins og brálæðingur fyrir jól og á milli jóla og nýárs og það tekur líka sinn toll af jólaskapinu.
Dæmið er bara sett leiðinlega upp
Kv. einn bitur.
Mín kærasta fær í sama kaliber og allir hinir.... maður gerir ekki upp á milli!