Af öllum skiptunum sem ég hef snúið í vitlausa átt til að herða/losa ótöldum þá eru þetta þau helstu sem ég man eftir.
Var að taka stuðara af Honda Jazz með vini mínum. Vorum búnir að losa allt sem við fundum og ætluðum að kippa stuðaranum af. Nema hvað hann bara neitaði að losna alveg sama hvað. Margar mínútur liðu og við reyndum allt. Svo sáum við bolta sem einhvernveginn hafði farið fram hjá okkur allann þennan tíma og vinur minn losaði hann og um leið fékk hann stuðarann BEINT í andlitið. Hef aldrei hlegið eins mikið þegar ég er að vinna í bíl.
Svo eitt skipti var ég búinn að vera að vinna í 540 þegar alternatorinn gaf sig. Þurfti að færa bílinn aðeins eftir að hann var búinn að vera þarna ógangfær í 1 dag, hafði byrjað deginum áður. Jæja ég byrja á að læsa stýrinu í beinni stöðu og set hann svo í N og tek úr handbremsu. Byrja að ýta, einn. Ég vissi að önnur hliðin var í góðum málum sem ég leit meðfram hinni hliðinni til að vera viss um að hann væri ekki að beygja eða fara utaní eitthvað. Jæja allt er í góðu og ég held áfram að ýta en fylgist með hliðinni. Svo þegar ég er búinn að ýta ca helminginn af leiðinni þá allt í einu er ekki neitt undir mér þar sem ég stíg og ég einsog asni HRUNDI ofaní grifju! Þá hafði ég lokað bara hálfri grifjunni þegar ég hætti kvöldið áður svo að enginn myndi detta ofaní ef þörf væri að fara fyrir framan bílinn. Ég endaði bara frekar ruglaður ofaní grifju að spá í hvað í andskotanum hafði gerst og með STÓRAN marblett á höndinni. Hefði getað farið verr samt
Svo var ég að skipta um rúðuþurrkutakka í E46. Reif allt frá með tilheyrandi vesen. Passaði meira að segja að taka rafmagnið af bílnum til að fá ekki airbag ljósið. Eftir að ég setti allt saman og rafmagnið á til að prófa.. gerðist ekkert. Tók allt í sundur og fattaði að ég gleymdi að tengja takkann.
Meira man ég bara ekki akkurat núna.