arnibjorn wrote:
Finnst aðallega kjánalegt að þú skulir setja inn söluþráð inní "Off topic" og ferð svo að væla yfir því að menn skuli spurja þig af hverju þú ert að selja þetta.
Af hverju settiru þetta ekki í flóamarkað ef enginn mátti kommenta á þetta?
Vegna þess að þetta er bmw bensín?
Ég vildi ekki setja þetta í söluþráð inn í "TIL SÖLU" - vegna þess að það var ekki listað þar.
Ástæða fyrir sölu er sú að ég _hélt_ að það væri betra að geyma bíl í kannski 1-2 ár með engu bensíni á. En greinilega hafði ég rangt fyrir mér í þeim málum.
Auk þess hafði ég ekki hugmynd um hvernig ég átti að koma bensíninu AF bílnum öðruvísi en að sjúga bensínið úr - og mig langar ekkert sérstaklega að gera það. Þannig að ég ákvað að bjóða hverjum sem er að koma og ná í bensínið AF bílnum mínum fyrir einhverja smáaura. Og ég sé ekki alveg hvað vandamálið er við það?
En núna eru allmargir búnir að segja mér að það sé betra að geyma bensínið á bílnum svo hann ryðgi ekki og jafnvel að bensínið skemmist ekki þannig að ég hugsa að ég geymi bensínið á bílnum.
Bíllinn ætti að vera næstum því fullur af bensíni þar sem mér tókst að keyra kannski 50km eftir að ég fyllti bílinn áður en hann fór að bila og varð ókeyranlegur.
Ég biðst innilegrar velvirðingar á þessum pósti mínum og bið ég um að verða ekki laminn á næstu samkomu.
Kv,
Kjéééllinn