Geirinn wrote:
Thrullerinn wrote:
Jæja, ég er sæmilega mikill hundavinur, en etv. ekki besti vinur hundavina,
allavega ekki eftir reynslu dagsins.
Ég er eitthvað að gæla við að uppfæra súkkuna í diesel pallbíl og prófaði
nokkra slíka í dag.
Ég og félagi minn prufukeyrðum einhverja og fórum með einn þeirra
niður á Geirsnef til að prófa á malarveginum, það er væntanlega 30 km
hámarkshraði þarna sem ég hélt mér við. Síðan voru þarna tvær konur
að viðra einhver 20-30 stk. af hundum sem hlupu að bílnum og voru að
leika sér, okkur fannst þetta bara gaman að þessu. Síðan þegar við
komum tilbaka voru þær alveg öskureiðar yfir því að við værum að aka
þarna og orðalagið var með því verra sem ég hef heyrt. Mér fannst þetta
með því heimskulegra sem ég hef lent í. Önnur þeirra toppaði þetta nú
með því að spyrja hvort ég ætti börn og hvort mér væri sama hvort þær
myndu aka "svona" í nálægð þeirra. Hún sem sagt setti hunda á sama
stall og börn, sem mér fannst mjög óviðeigandi.
Persónulega finnst mér gaman að gæludýrum, hundum, páfagaukum o.fl.
..en þetta er bara einum of.
Þannig ef þið eruð að prufukeyra bíl þá ekki fara út á Geirsnef nema að
þið hafið gaman af pirruðum öskrandi "kellingabeyglum" sem eiga alltof
marga hunda.
Ef það má keyra þarna og þú virtir hámarkshraða þá skil ég þetta bara alls ekki.
Í fyrsta lagi myndi ég aldrei fara með hundinn minn þangað - allt morandi í sjúkdómum og viðbjóði - það sér enginn um að hreinsa upp skítinn eftir dýrinn og er þetta eins og ein stór svínastíja/svínastýja.
Það með að setja hundinn sinn á sama stall og barnið sitt það er annað mál. Fyrir mörgu fólki eru hundar mikils virði og eru elskaðir og dáðir af allri fjölskyldunni jafn mikið og manneskjurnar í þeirri sömu fjölskyldu.
Allavega gildir það um mína hunda sem ég á.
En þetta var kannski óþarfa samlíking hjá konunni. En aftur á móti eru hundar alveg jafn óútreiknanlegir og börn þegar að kemur bílum.
kv,
haukur