bebecar wrote:
Thrullerinn wrote:
einarsss wrote:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/13/samningar_um_icesave_eina_leidin/
Jæja ... þá er búið að kúga Ísland til að gera upp skuldir sem hefðu átt að fara fyrir dómstóla!
Djöful er ég pisst núna

jæja, þá verðum við bara að beygja okkur eftir sápunni....
Ég sá í einhverri umræðu loksins að menn eru að átta sig á því að það eru í raun bara tvær leiðir í stöðunni, bæta allar inneignir jafnt eins og ég sagði hérna áður og þá ótakmarkað, eða bara upp að maxi.
Það er svo annað mál hvort að hægt sé að semja eitthvað um að maxið sé dekkað með eignum Landabankans sem væri að mínu mati besta lausnin.
Hinsvegar held ég að EU sýni einfaldlega sitt rétta andlit þarna. Lítil þjóð eins og Ísland á aldrei eftir að geta gætt sinna hagsmuna í ríkjasambandi við þessar stóru þjóðir.
Það hlýtur að gilda jafnræðisregla í þessu máli eins og öðru.
1. ef þeir ætla að ábyrgjast innistæður sama banka á Íslandi, þá eiga þeir að gera það í útlöndum líka, bankinn er staðsettur á Íslandi.
2. þetta var klúður að hálfu ríkisstjórnarinnar og FME að hafa ekki augastað á þessu.
3. bankamennirnir hefðu náttúrulega aldrei átt að fara svona geyst í málið.
EU sýna sitt rétta andlit? Well, jú, það gilda ákveðnar reglur, og fólki ber að fara etir þeim. Skiptir ekki máli hvort þú sért lítill, eða vangefið hávaxinn OG feitur, þú þarft samt að fara eftir reglum.
Ég held að þú áttir frekar að orða þessa setningu á eftirfarandi hátt:
Hinsvegar held ég að Ísland ætti nú bara að drífa sig í EU. Lítil þjóð getur aldrei skipað stjórn sem er óháð og engin mafía í. EU á eftir að verja hagsmuni okkar og gera okkur að alvöru þjóð, í fyrsta skipti síðan 873.
Íslendingar kunna ekki einusinni að veiða fisk <- þetta er hlutur sem þeir þykjast vera svo ótrúlega góðir í, en þeir eru búnir að klúðra því, ásamt því að hafa klúðrað kvótakerfinu.
Við seljum raforku vangefið ódýra til fyrirtækja sem eru í frekar miklu "svartabraski", ekki mjög legit fyrirtæki (Alcoa, alcan etc).
"Forystumenn" landsins hafa ekki rænu á því að hugsa út fyrir kassann, þetta eru menn sem eru búnir að vera of lengi í pólítík og eru farnir að hugsa BARA pólítískt, en ekki frjálshyggjulega. Það eru ekki allir jafnir hjá þeim. Það má ekki færa X því ef X er færður þá missir Y vinnuna og Y er svo góður strákur og verður að halda vinnunni.
Ísland á ekkert erindi lengur að halda sínu eigin alþingi jafnvel, það sést bara mjög vel á því hversu ótrúlega spillt þessi þjóð er. Sonur fyrrv. borgarstjóra sem átti yfir 3 milljarða í KB, og er líklega laus við skuldahalann?
Ég held að ástæðan fyrir því að IMF sé stopp með að lána okkur sé út af kvótakerfinu, eða hvernig það var staðið að því, sem er mannréttindabrot skv. reglum EU. Ég held að IMF fari fram á skýringa varðandi það og þessvegna sé ekki komin niðurstaða í málið.
310.000 manna þjóð getur ALDREI stjórnað sér sjálf - það er of lítið svigrúm til þess - auðvelt að mynda klíkur og spillingu - það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að íslendingar kunna alls ekki að stjórna eigin hagkerfi og jafnvel skoðunum (íraksstríðið).
Ég segi beint í EU, burt með þessa djöfulsins krónu og hennar ándskotans skuldahala.
kveðja,
haukur