Svo var þetta bara lokaverkefni
http://www.visir.is/article/20081105/FRETTIR01/878858835/-1
bebecar wrote:Rólegir nú, það er nóg af spillingar málum á norðurlöndunum líka og hefur verið reglulega í gegnum tíðina. Hinsvegar eru þau kannski gerð upp reglulegar þar sem meirihlutaskiptingar eru tíðari hér og virkari fjölmiðlun og gagnrýnna þjóðfélag.
Ég vona bara að þessi mótmæli fari loksins að beinast LÍKA að þeim sem stofnuðu til skuldanna. Fyrr verður ekkert mark á þessu takandi. Það er uppgjörið sem vantar.
Zyklus wrote:Ég myndi því treysta norræni rannsókn mun betur en íslenskri. Í rauninni verður að fá erlenda rannsóknaraðila hingað til lands því að traust almennings á stjórnvöldum er ekkert.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
bimmer wrote:Zyklus wrote:Ég myndi því treysta norræni rannsókn mun betur en íslenskri. Í rauninni verður að fá erlenda rannsóknaraðila hingað til lands því að traust almennings á stjórnvöldum er ekkert.
Þetta er alveg lykilatriði - það eru allir hér of tengdir.
Eggert wrote:Hvernig geturðu verið sammála því en finnst það samt hæpið að sækja fólk út úr landi til að gera þetta?
Bankastjóri Nýja Kaupþings segir að lykilstarfsmönnum, sem fengið höfðu sérstaka lánafyrirgreiðslu hjá bankanum, verði ekki vikið frá störfum, enda bendi ekkert til saknæms athæfis. Komi hins vegar annað í ljós verði tekið á því með viðeigandi hætti.
Óháðir sérfræðingar munu kanna umdeild hlutabréfakaup lykilstarfsmanna gamla Kaupþings, en kaupin hlupu á tugi milljarða og persónulegar ábyrgðir voru felldar niður. Bankastjóri segir engin lán verða afskrifuð og kveður marga starfsmenn nú fjárhagslega illa stæða. Það hafi áhrif á starfsemina.
Ljós er að bankinn hefur orðið fyrir álitshnekki og í harðorðri yfirlýsingu í dag krefst Alþýðusamband Íslands þess að hið sanna verði dregið fram í dagsljósið.
Umdeilt er þó að margra mati að margir af þeim lykilstarfsmönnum sem tóku þátt í hlutabréfakaupunum, séu enn að störfum í nýjum banka. Finnur segir að hann beri ábyrgð á ráðningu þeirra, þörf hafi verið fyrir hæfa einstaklinga til að bankinn yrði starfhæfur hið fyrsta.
Bifreiðahlunnindi eru hluti af launakjörum stjórnenda Nýja Glitnis og Landsbankans, auk einhverra annarra lykilstjórnenda. Leynd hvílir enn yfir launakjörum bankastjóra Nýja Landsbankans.
Það hefur reynst þrautin þyngri að fá upplýsingar um hlunnindi lykilstjórnenda nýju bankanna. Enn skirrist Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Nýja Landsbankans, við að gefa upp laun sín og vísar til þess að starfsemi bankans falli ekki undir stjórnsýslulög og sé því ekki upplýsingaskyld.
Fréttastofan hefur þó aflað sér heimilda um að Elín aki um á glæsilegri Bensbifreið sem skráð er á bankann og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði í gær að launakjör Elínar væru á svipuðum nótum og bankastjóra hinna bankanna, en þeir eru með eina milljón og sjö hundruð og fimmtíu þúsund krónur í mánaðarlaun.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis ekur einnig um á gæsibifreið sem er skráð á bankann og fréttastofu er kunnugt um að fleiri lykilstjórnendur bankans njóti bílafríðinda, sumir þó aðeins tímabundið.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, var eini stjórnandinn sem talaði við fréttastofu. Hann segist ekki njóta bifreiðahlunninda, hann ætti þó kost á því, en þá myndi það dragast frá launum hans.
Samkvæmt heimildum fréttastofu mun það vera venjan að bifreiðahlunnindi séu hluti af launum, en leggist ekki ofan á þau.
Það gæti reynst starfsmönnum Kaupþings dýrkeypt að stjórn bankans hafi afskrifað skuldir þeirra vegna kaupa á hlutabréfum í bankanum. Helgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir það kunna að brjóta í bága við almenn hegningarlög. Brotið varði allt að sex ára fangelsi.
Helgi Magnús segir að starfsmennirnir gætu verið sekir um skilasvik með því að rýra svo veðin sem bankinn átti í skuld þeirra að það skerði rétt annarra lánadrottna til þess að fá fullnustu krafna sinna.
bebecar wrote:Sáuð þið formann VR í kastljósinu![]()
Sá er djúpt í skítnum maður og ekki gat hann svarað fyrir sig enda er þetta óverjandi.
Ef starfsmenn hefðu selt (ef þeir hefðu ekki haft trú á bankanum) og borið ábyrgð á skuldunum þá hefði gengið hreyfst en það hefði verið einmitt vísbendingin sem aðrir hluthafa eiga að fá um að ekki sé allt í lagi.
Meira en lítið rotið...
Schulii wrote:Mér finnst nú margt ansi langsótt hjá þér Zyklus. Það er alveg vitað að sambandið milli menntamálaráðherra og seðlabankastjóra er alls ekki það vingjarnlegasta og að seðlabankinn veiti svona stórt lán til að bjarga einhverjum smápeningum hjá einum ráðherra er algjörlega absúrd!!!

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests