Sezar wrote:
Nokkuð til í þessu bloggi.
Jón og séra Jón
"Maður veldur banka tjóni og eyðileggur eign sem að banki er að taka til lúkningar skuldar. Samkvæmt Visi er maðurinn í yfirheyrslum og óvíst hvort hann verður í varðhaldi áfram.
Þarna var sem sagt eign banka eyðilögð og brugðist skjótt við. Ákveðnir aðilar eyðilögðu ævisparnað og eignir heillar þjóðar engin af þeim er í yfirheyrslu eða varðhaldi.
Sýnir þetta ekki forgangröðunina.
Ég vil beina því til bankans sem á í hlut og lögreglu að vera nú ekki að leita að sökudólgi í þessu máli því að mér finnst að eitt eigi yfir alla að ganga og hví ætti að leita að sökudólgi í þessu máli frekar en í eignarupptöku á heilli þjóð. Bankin má líka leiða hugan að því að það voru aðgerðir og stefna svoleiðis stofnana sem að ollu þeirri þróun sem að leiddi síðan til þessa verks. "
Get nú ekki verið sammála því... Þó að aðgerðir þessa "ákveðnu aðila" hafi eyðilagt ævisparnaði osfv þá finnst mér ólíklegt að þeir hafi haft það að leiðarljósi þegar þeir tóku ákvarðanir um fjárfestingar og viðtöku innlána... Þessi maður þarna sýnir algjöran brotavilja og hefur enga afsökun
