Porsche 944 Turbo ''T944''|mössun á síðu 2,,felgur á síðu 4!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Porsche 944 Turbo ''T944''|mössun á síðu 2,,felgur á síðu 4!

Postby ViktorGuðbergs. » Tue 27. Jan 2009 20:58

Vorið 1986 kom út af færibandinu í Stuttgard skínandi svartur bíll. Nýji eigandinn var búinn að bíða lengi eftir þessum degi. Beið spenntur eftir að fá hann afhentan í sínu umboði. Þetta var Porsche 944 Turbo, var þetta fyrsta árgerð af þessari tegund. Honum var ekið varlega heim og sýndur öllum þeim sem vildu sjá. Vel var hugsað um bílinn og voru gerðar á honum smá breitingar, settir á hann sílsar og svunta að aftan. Einnig var skipt um wastgate og eitt og annað.

En gleðin var ekki endalaus, haustið 1987 var ekið aftan á hann þar sem hann stóð kyrr á ljósum. Beyglaðist afturgaflinn og aðeins inn á afturbrettin. Ekkert stór tjón en samt til þess að maðurinn vildi selja. Og þá fréttir Pabbi minn af bílnum hjá Manfred Freisinger Motorsport!

Nú víkur sögunni til Íslands, Pabbi (Guðbergur Guðbergsson) og vinur hans Nonni (Jón S. Halldórsson) Hringja út og fá það staðfest að hann væri enn til sölu og eftir nokkra mínútna umhugsun var keyptir miðar og vinirnir voru mættir stuttu seinna að skoða gripinn.
Sem sagt í stuttu máli, bíllinn var keyptur, ekið í skip, varahlutir keyptir og allt sent til Íslands. Koma hann heim í febrúar 1988, vegna anna í öðru mótorsporti þá drógst vel fram á haustið að gera við bílinn og kom bíllinn á götuna 07-12-1988.
Bíllinn stóð vel undir væntingum. Aksturseiginleikar og afl var með því mesta sem hægt var að fá í fjöldaframleiddum bíl á þessum tíma. Enginn bíll á Íslandi átti séns í hann í ökuleikni. Sést best að hann sigraði 750 c.c. mótorhjól í keppni upp Kambana. Og var það í fyrsta sinn sem mótorhjól tapaði þannig spyrnu. Var þetta eini bíll fjölskyldunnar sem taldi 3 á þessum árum. Þannig að þetta er bíllinn sem menn þurfa ekki að selja þó svo þeir eignist börn.
Sumarið 1989 var haldið keppni á planinu hjá Miklagarði. Var það kallað Akstursleikin Ungafólksins. Var búið að gera braut með keilum og kepptu 2 í einu. Brautin var þröng og ekki mikill hraði en þessum erfiðari að aka. Voru veitt mínus stig fyrir að snerta keilur og það bætt við tímann sem menn náðu.
Þarna voru allar gerðir af bílum, pabbi og mamma á Porsche 944 Turbo og til dæmis Jóns S. Halldórsson á Trabant. Var gífurlega gaman að sjá Jón tvíhjóla á Trabbanun og sýndi hann vel hversu góður ökumaður hann var. Þegar allir voru búnir að aka var spurt hvort Jón eða Beggi hefðu unnið og svarið var nei. Svo öllu var pakkað saman og haldið upp í skúr að vinna. Laga þurfti Jeppsterinn fyrir næstu torfærukeppni. Rúmum klukkutíma seinna kom dómnefndin með bikarinn úr keppninni og veitti Mömmu hann. Hún hafði öllum að óvörum ekið á besta tíma dagsins.
En ekki var þetta eina keppnin sem bíllinn tók þátt í. Var keppt á honum í sandspyrnu á keppni Kvartmíluklúbbsins sem haldinn var í Ölfusi. Sigraði hann þar sinn flokk.
En nýjar gerðir af bílum koma árlega á markaðinn og 30-10-1990 var bíllinn seldur. Þá hafði pabbi fundið Porsche 911 Carrera 4.
Núna eiga nokkir eigendur hann, sem gera mis mikið við hann, pabbi eignast hann svo aftur 2002 og seldi strax. En núna í haust keypti ég hann og hef verið að dunda mér við að laga hann. Búinn að fara yfir bremsur, ljós, er að laga púst. Og svo þarf að laga smá á boddyið.
Verður hann klár þegar ég kem með hann á götun fyrir afmælið mitt í apríl.
Hér eru nokkrar myndir af honum.

Hérna er bíllinn kominn í hús

Image

Image

Byrjað að vinna á fullu í bílnum

Image

Image

Image

Image

Image

Síðan er bíllinn á lyftunni í uppherslu:)
Last edited by ViktorGuðbergs. on Fri 13. Mar 2009 12:26, edited 4 times in total.
ViktorGuðbergs.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Wed 17. Dec 2008 16:56
Location: Ofanleiti

Postby F2 » Tue 27. Jan 2009 21:42

...
Last edited by F2 on Mon 20. Jul 2009 18:10, edited 1 time in total.
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Postby íbbi_ » Tue 27. Jan 2009 22:11

ekki amarlegur skúrinn í stæðsta einbýli landsins
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Alpina » Tue 27. Jan 2009 22:16

Þetta þótti aldeilis MEGA bíll á sínum tíma ,,,,,,,,

Pabbi þinn var eflaust ,,, feiitttttt svalur,, á sínum tíma akandi um á þessu

ps ,, fínt afl í þessu einnig




til hamingju með þetta
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Thrullerinn » Tue 27. Jan 2009 22:19

góður fyrsti bíll !! :)

Bróðir minn átti hann fyrir nokkrum árum, ók honum smá þá.. fínasti kaggi 8)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby ValliB » Tue 27. Jan 2009 22:42

Glæsilegur bíll.
En ef þetta er fyrsti bíllinn, hvernig verður þá næsti? :shock:
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Postby jens » Tue 27. Jan 2009 23:02

Glæsilegur bíll, til lukku með gripinn.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Sezar » Tue 27. Jan 2009 23:51

Man vel eftir þessum 8)

Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár?
User avatar
Sezar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2731
Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40

Postby saemi » Tue 27. Jan 2009 23:58

Ég man eftir þessum á árunum um 90. Einn svalasti bíllinn á Verslóplaninu á þeim tíma. Ásamt hvíta bensanum sem pabbi Guðjóns OZ átti. Þetta eru allavega þeir 2 sem ég man í augnablikinu eftir :)
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Porsche-Ísland » Wed 28. Jan 2009 01:06

Sezar wrote:Man vel eftir þessum 8)

Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár?


Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag.

964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum.
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby Alpina » Wed 28. Jan 2009 07:30

Porsche-Ísland wrote:
Sezar wrote:Man vel eftir þessum 8)

Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár?


Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag.

964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum.


Er sá bíll dökkblár
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Porsche-Ísland » Wed 28. Jan 2009 08:43

Alpina wrote:
Porsche-Ísland wrote:
Sezar wrote:Man vel eftir þessum 8)

Getur verið að Þorsteinn Kragh "smyglari" hafi átt hann í nokkur ár?


Rétt er það, Þorsteinn átti á á tímabíli. Á annan Porsche í dag.

964 með turbo looki, settum í hann blower fyrir nokkrum árum.


Er sá bíll dökkblár


Rétt er það.
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby ingo_GT » Wed 28. Jan 2009 09:10

Flottur hjá þér 8)

Ekki slæmt að eiga svona sem fyrsta bíl :)
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið

Postby gunnar » Wed 28. Jan 2009 09:15

Mjög flott eintak 8)

Endilega taka fleiri myndir 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby ViktorGuðbergs. » Thu 29. Jan 2009 16:09

Takk fyrir öll góður orðin :D,,

já ég kem með fleiri myndir bráðum þegar það hefur e-ð gerst í bílnum..
ViktorGuðbergs.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Wed 17. Dec 2008 16:56
Location: Ofanleiti

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 45 guests