bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 05:38

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Nú var það tæpt
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 02:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Var að lenda í frekar scary uppákomu áðan - hefði getað farið verulega illa.

Var að keyra heim á bláa eftir smá prufurúnt með nýjan lausagangsventil.
Er á gatnamótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar, ég er að koma frá
Smáralind og ætla að beygja til vinstri upp hjá Vífilsstöðum.

Bíð á ljósunum eftir beygjuljósi, nokkrir bílar búnir að fara í gagnstæða átt
og svo enginn bíll. Kemur grænt á beygju ég búinn að líta eftir bíl en ákvað
svona rétt áður en ég fer yfir akreinarnar á móti að kíkja aftur (byggingakrani
og eitthvað drasl þarna fyrir núna). Ég næ rétt að negla niður til að forða því
að fara fyrir Lexus jeppa sem kom á hrikalegri siglingu og fór yfir á rauðu.
Það munaði svo litlu að ég hefði farið fyrir hann og hann átti ekki breik í að
stoppa bílinn á þessari ferð - við erum að tala um 150-200km hraða.

Allavega, fauk í mig og ég hendist á eftir honum - hann er búinn að ná
bílunum sem voru á undan og ég næ honum á næstu gatnamótum og
blikka hann til að reyna að fá hann til að stoppa. Hann reynir að stinga mig
af en sér fljótlega að það er ekki að fara að gerast. Vippa mér framfyrir
hann og reyni að hægja á honum en hann fer til hliðar og framúr.

Ákvað að vera ekkert að taka neina svona sénsa og fylgi honum eftir í smá
fjarlægð. Hann rúntar aðeins um bæinn en stoppar loks við Hótel Nordica þar
sem ég messaði yfir honum. Þetta var gaur milli 25-30 og bíllinn var
Lexus RX300 með númerið PD-8XX.

Þetta er held ég það næsta sem ég hef komist því að drepast í umferðinni
hér á klakanum :pale:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 02:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Damn!!!

En hrikalega var hann óheppinn með bíl til að reyna að stinga af :lol:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 02:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Posts: 1770
Location: Vesturbæ Reykjavíkur
Haha ég hugsaði það sama, ekki fræðilegur fyrir hann að stinga af.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 03:03 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Posts: 2518
Location: sniffa lím
Maður ætti að fara að temja sér svona siði, borgar sig greinilega að líta tvisvar í sumum tilvikum :shock:

Hafði maðurinn einhverja ástæðu fyrir fávitaskapnum ?

_________________
vti


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 03:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Hvað sagði félaginn svo þegar þú fórst að tala við hann?

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 07:04 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Var maðurinn í annarlegu ástandi eða bara svona vitlaus?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 08:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Úff, maður skilur stundum ekki hvað svona himpigimpi eru að hugsa..

Gott hjá þér samt að elta hann í staðinn fyrir að blóta honum í sand og ösku svona eins og við flestir gerum.

En já, sammála hinum að gaurinn hefði ekki getað verið óheppnari með bíl til að stinga af :lol: :lol:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 10:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég var einmitt að lenda í svipuðu atviki, er að keyra upp götuna frá rauðarárstígnum framhjá kjarvalsstöðum, það fyndna er að ég sá að það var grænt ljós en var alveg hmmm er ekki grænt.. og fer yfir og þá kermur ljósblár getz á jólagjöfini yfir á rauðu og bombar næstum því beint inní hliðina hjá mér, mér hefur sjaldan brugðið sona mikið

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 10:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Ég er líka sífellt að lenda í því að fólk er næstum því búið að skipta inn í hliðina á mér á miklubrautinni. Kann fólk ekki á speglana hjá sér eða er það bara svona blint?

Gerðist þrisvar í gær hjá mér. Óþolandi anskoti. :x

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 10:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Posts: 1739
Location: Kópavogur
gunnar wrote:
Ég er líka sífellt að lenda í því að fólk er næstum því búið að skipta inn í hliðina á mér á miklubrautinni. Kann fólk ekki á speglana hjá sér eða er það bara svona blint?

Gerðist þrisvar í gær hjá mér. Óþolandi anskoti. :x


Segðu :shock: allir geta nú gert mistök, en ég er samt farinn að halda að 90% af höfuborgarbúum hafi fengið skýrteinið í fjölskyldugarðinum :?

_________________
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 12:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Já djöfull hefði ég apeshittað ef ég hefði verið í þinum sporum Þórður :shock:

En það kemur nú mjög reglulega fyrir að það sé svínað fyrir mig á trukknum og ég verð alveg hoppandi reiður en neeeiii ég á ekki séns á því að ná ökumanninum og messa yfir honum :|

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 13:05 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Það er nánast að maður keyri með aðra hönd á flautunni þegar ég er úti á roadsternum.. náttúrulega frekar lítill og svartur og sést illa + fólk kann almennt ekki að keyra... þetta var samt minnsta mál á 4runnernum.. reyndi enginn að keyra yfir mig á honum :lol:

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 14:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Kappinn hafði litlar skýringar á þessum fávitaskap og virtist
ekki vera undir áhrifum.

En já hann hefði getað verið heppnari með bíl til að stinga af :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 16:47 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 02. Jun 2007 12:17
Posts: 58
Ótrúlegt, bara heppni að ekki fór verr. Gott að þú náðir að tala við hann án þess að hann keyrði í hliðina á þér eða eitthvað verra.

Auðvita ekki fræðilegur séns að stinga þennan bíl af :)

_________________
Örvar Andrésson
Bmw 325i e30 88' Mtech II


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jul 2008 17:39 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Aug 2003 23:38
Posts: 200
En hvernig virkaði lausagangsventillinn :lol:

_________________
692-4669

Rallycross spjall


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group