Magnað, ég hef einmitt tiltölulega góða reynslu af samskiptum mínum við bílasala.
Yfirleitt hef ég bara gengið inn á bílasöluna, og sagt ég er að pæla í bíl sem kostar svona, svona mikið, helst þetta eða þetta merki, hvað ertu með á lista fyrir mig?
Þeir hlaupa bara til, prenta út allskyns rugl, og sýna mér nokkra bíla, eru fljótir að sjá út hvaða merki ég vil ekki, eftir að spyrja hvort ég vilji skoða, svo hafa sumir meira að segja hringt í mig þegar nýjir bílar sem passa við mín skilyrði koma á sölu hjá þeim.
Eini vandinn er að sjaldnast finnur maður eitthvað spes með þessari tækni.
En ég er nú bara nýlega orðinn 21 árs, og hef ekki lent í svona dissi, er ég bara heppinn?
