Það er einfaldlega bannað að auglýsa hluti frítt eða ókeypis ef þú þarft að borga eitthvað til þess að fá hlutinn/þjónustuna.
Ef einhver auglýsir hlutinn frítt/ókeypis og þú mætir á staðinn til þess að sækja hann og færð ekki afhentan nema að þurfa að kaupa eitthvað annað þá er besta ráðið bara að hóta viðkomandi málsókn eða að kæra hann til Samkeppniseftirlitsins
Það að Blóðbankinn taki blóðið úr þér "frítt", og að þú fáir djús og kex "frítt" á eftir blóðtöku, þýðir ekki að blóðtakan sé frí. Blóðbankinn er rekinn af Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi - og "ég man nú ekki betur en" að ríkið borgi allann brúsann þar. Sem sagt alllir þeir sem greiða skatta í þjóðfélaginu borga fyrir rekstur Blóðbankans og því verð blóðgjöfin ekki frí
