SteiniDJ wrote:
Geirinn wrote:
dabbiso0 wrote:
demi wrote:
Þetta virðist vera ótrúlega algengt að verkfærum sé stolið

Hva.. helduru að heimabraskarar ÆTLI AÐ KAUPA VERKFÆRIN SÍN.. ónei
Hvað er 'heimabraskari' ?
Er það maður sem stelur verkfærum til að gera og græja heima hjá sér ?

Ég myndi frekar tölta niður í BYKO og versla mér nokkur skrúfjárn í staðinn fyrir að taka rúnt til Thrullerins og stela bíl fullum af verkfærum!

Bara svona til að leiðrétta þá var EKKI verið að stela verkfærum frá mér !!!!Þetta er auglýsing sem ég sá og áframpóstaði hér, ef öllum verkfærunum mínum yrði stolið þá yrði ég hreinlega
ónýtur í margar vikur. Manni þykir nú ansi vænt um þetta dót sem maður hefur sankað að sér síðustu árin!