gardara wrote:Mig hefur alltaf langað í svona stýri.... Er G25 málið?
Fer eftir bara hverju maður er að leita að. Sjálfur hélt ég að G25 væri það eina sem myndi ganga upp fyrir mig, með kúplingspetal, 6 gíra gírskipti og 900° rotation.. en síðan nota ég alltaf bara svona 260°, snerti ekki gírskiptinn (nota paddle shift á stýrinu sjálfu) og er alltaf með Auto-Clutch, þannig hvaða stýri sem er hefði í rauninni dugað fyrir mig. Ef ég væri að velja í dag, tæki ég Logitech Momo Racing stýrið. Fylgir ekki með þessi auka shifter sem þarf að vera tengdur en er bara fyrir og svo er það mikið ódýrara.