mbl.is - Könnun

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Heimsækir þú mbl.is? eftir að davíð oddsson komst til valda

97
83%
Nei
20
17%
 
Total votes : 117

Re: mbl.is - Könnun

Postby SteiniDJ » Fri 02. Oct 2009 15:07

Zed III wrote:
SteiniDJ wrote:Ég sé ekki hvað menn eru að æsa sig útaf Dabba. Hann vill ekki ganga í ESB (eins og helmingur þjóðarinnar), hann vill ekki borga IceSave (eins og nánast öll þjóðin), hann var á móti útrásarvíkingum á undan ykkur öllum og hefur aldrei beint verið góðvinur forsetans og skil ég því ekki afhverju menn eru svona ósáttir með hann. Held að þetta sé bara eitthvað í tísku í dag, eins og að hata útrásarvíkingana.

http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/entry/895918/


Ég er algjörlega sammála bloggaranum.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: mbl.is - Könnun

Postby Danni » Fri 02. Oct 2009 16:05

Ég kíki bara á mbl.is til að nota gengisreiknivélina og sjá komutíma á flugum til landsins. Svo ég hef ekkert breytt því hversu oft ég fer inná þessa síðu.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: mbl.is - Könnun

Postby Schulii » Fri 02. Oct 2009 19:03

Ég fer oftar á mbl.is.

Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé ekki bara rétti staðurinn fyrir kallinn ef hann vill hafa áhrif. Það hefði verið erfitt að komast aftur í pólitíkina eftir hefðbundnum leiðum. Í prófkjör hjá Sjálftstæðisflokknum? held ekki. Stofna nýjan flokk? held ekki. Þarna hefur hann líklega vopnið sem hann þarf, hann er svo sannarlega með munninn fyrir neðan nefið og er orðinn ritstjóri stærsta blaðs landsins. Flís í rass.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Re: mbl.is - Könnun

Postby HPH » Sun 04. Oct 2009 14:12

ég kaus já.
ég segi eins og er Davíð Oddsson er bestur nei nei gæti ekki verið meira sama hvort hann stýrir þessu fyrirtæki eða öðru svolengi að það er einkarekið. Ég skil ekki þetta Davíðs væl, þessir Davíð vælukjóar eru jafn slæmi ef ekki verri en Davíðs dýrkendur og eru gjörsamlega pæla í öllu sem hann gerir.
En ég er mjög hrifinn af því að það voru hellingur af lélegum, leiðinlegum og óhæfum "fréttamönnum" látinn taka pokann sinn.
Ég skoða mbl.is , visir.is , pressan.is og eyjuna og margar aðrar síður á hverjum degi og það minkar ekkert eftir hver er ritstjór hvers miðils. Ég er ekkert alltaf samála kanski fréttamanninum eða einstaklingnum sem skrifar greinina.
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Re: mbl.is - Könnun

Postby Viggóhelgi » Mon 05. Oct 2009 19:54

rosalega finnst mér það heimskulegt að fólk hætti að heimsækja vef vegna þess að ritstjórinn sé Davíð..

hann ritar ekki greinarnar allar á mbl.. það er ljóst,

þetta er mega kjánalegt.

btw. hann er mega góður penni
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests