daginn,
er að spá í einu varðandi tryggingamál og tjón.
Var að keyra heim úr Keflavík í gær og lenti í smá atviki. Önnur akreinin var nánast stopp og ég lít í spegil og sé nokkuð langt í bíl hinni akreininni. Ég skipti um akrein og nokkrum sek seinna sé ég bílinn sem var á akreininni kominn út fyrir veg og upp að hliðinni á mér. Hann segist hafa verið á 110 og ekki náð að hægja á sér. Bílarnir nudduðust aðeins saman en minn skemmdist mjög lítið, nokkrar smárispur en reyndar skemd á báðar felgurnar (sem ég ætlaði mér að polýhúða). Bíll félagans, sem var mjög kurteis og vinalegur, skemdist nokuð meira.
Ég er að spá í tryggingamál. Ég er ekki 100% á því að vera í rétti, þó mér finnist ég eiga að vera það þar sem ég er kominn alveg út á akreinina og búinn að keira beint í smá tíma, plús hann segist hafa farið of hratt. Á ég að fara með þetta í tryggingarnar og sækja þetta eins og ég sé í rétti eða gera eitthvað annað (mitt tjón er ekki mikið).
Við gerðum ekki skýrslu en ætlum að gera slíka á eftir. Minn er ekki í kaskó hans er í kaskó.


