Sælir.
Vildi aðeins pósta einni spurningu - margir hérna inni sem eru með gríðarlega visku varðandi bilanagreiningar.
En svo er málið með vexti að ég er með Toyota Corollu 94 árgerð.
Þegar ég er að keyra í 1, 2 eða 3 gír og er kominn í ca 2500 snúninga, þá, en ekki alltaf, byrjar bíllinn að hökta og hristast alveg á fullu. Þ.e. hann höktir svona eins og hann sé að kokast. Svo stundum, en ekki alltaf, er ég að keyra og bíllinn virðist fáránlega máttlaus á milli 2000-3000snúninga, en um leið og hann fer í svona 3200-3500snúninga þá virkar hann sem eðlilegur. Við erum að tala um það mikið máttleysi að hann nær ekki einusinni að hraða sér.
Hvað gæti valdið þessu dóti? Þetta er alveg verulega pirrandi.


