hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby Davíð St. » Thu 02. Apr 2009 04:19



ég að spá að skella mér út með norðrænu og var að spá hver er svona eðlilegur ferðatími frá rvk til seyðisfjarðar á bíl löglega.
veit að menn vita þetta pottþétt hérna þar sem Nurburgring er seinna heimili ykkar :D

kannaði með gps korti að þetta eru sirka 800 km þaggi?

með þökkum

Davíð
Davíð
Davíð St.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 35
Joined: Fri 06. Jun 2003 18:35
Location: Reykjavík

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby Kristjan » Thu 02. Apr 2009 05:45

á löglegum hraða ertu svona 8-9 tíma
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby JonFreyr » Thu 02. Apr 2009 06:29

Og myndi hiklaust mæla með norðurleiðinni, virðist ALLTAF vera vegavinna og langir kaflar med steinkasti og tilheyrandi þegar ég fer suðurleiðina. Leggja af stað snemma og hafa smá aukatíma ef eitthvað klikkar, getur þá líka fengið þér að éta á Akureyri og þarft þá ekki að keyra eins og bjáni. Fyrsta ferðin mín byrjaði að kvöldi til í Keflavík og svo brunað yfir nóttina, var lengsti dagur ársins þannig að það var bjart alla leiðina austur 8)

Hvert á annars að fara á meginlandinu?
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby . » Thu 02. Apr 2009 07:11

suðurleiðinn er nú fljótari yfirferðar finnst mér, tók hana síðast á eehhhh tíma sem ég nefni ekki hér :mrgreen: enn það var talsvert minni umferð enn er á norðurleiðinni bara 18 blue alla leið.
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km
User avatar
.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 878
Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Location: Reykjavík

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby Davíð St. » Thu 02. Apr 2009 07:33

hehe ég er því miður ekki að fara suður eftir Esbjerg til þýskaland heldur þvert yfir danmörku og til skóne svæðis í svíþjóð að vinna, vísu ekki svo löng leið.. 300 km frá Esbjerg

nenni ekki að þurfa að velja hvað fer í töskurnar þegar maður getur fyllt bílinn af dóti , svo fínt road trip að sleppa fluginu og þarf ekki að versla bíl dýrari en hérna heima úti

svo leiðin er þá ekki svo slæmt ef menn ættu að ná þessu á 8-9 tímum.. þetta er bara svipað og til akureyri og tilbaka á tíma með löglegri keyrslu.

mér leið illa að sjá allar þessa beygjur á leiðinni og gamlar sögusagnir um að vegurinn er ekki það góður.
Davíð
Davíð St.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 35
Joined: Fri 06. Jun 2003 18:35
Location: Reykjavík

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby Axel Jóhann » Thu 02. Apr 2009 17:34

Hafðu engar áhyggjur ef þú ferð suðurleiðina og svo yfir ÖXI.


Ég fór þarna í fyrrasumar frá seyðisfirði og til þorlákshafnar í lok júlí, þá var lítil sem engin umferð og bara ágætis vegir alla leið



nema ég veit ekki hvernig bíl þú ert né hvernig færðin er yfir ÖXI en ég fór hana á Camaro í lok júlí.



Ég keyrði á svona 100-110 :santa: mestalla leið og var svona mayb 6-7 tíma. :) Lítil sem engin umferð og einn staður þar sem var vegavinna, virkilega gaman að keyra Öxi, fallegt útsýni.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: hversu lengi eru menn að keyra til Seyðisfjarðar frá rvk

Postby Davíð St. » Thu 02. Apr 2009 18:13

ég ræddi við mjög ræðinn mann áðan sem tjáði mér helst að fara með nánast dags fyrirvara og sleppa að taka þetta í einum rikk og gista á leiðinni þar sem við búum á íslandi sem veður skiptir snöggt um skap og aldrei að vita hvað kemur fyrir.

ég er á hrísgrjónaköku af Galant gerð sem er meira segja með cruize control til að stjórna eyðslunni fyrir mann.

hef engar áhyggjur heldur snýst bara hversu fljótt maður þarf að leggja af stað til að ná í skipið fyrir lokun eða deadline.
Davíð
Davíð St.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 35
Joined: Fri 06. Jun 2003 18:35
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 41 guests