Okkar Sjóðir.is

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Okkar Sjóðir.is

Postby ValliFudd » Fri 27. Mar 2009 09:28

Var ekki búinn að rekast á þetta hér.

http://www.okkarsjodir.is

Image
Forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna er, þrátt fyrir fjórðungslækkun launa, launahæsti forstjóri íslensks lífeyrissjóðs. Starfskjör hans fela einnig í sér bifreiðahlunnindi sem hann að sjálfsögðu nýtir. Á sama tíma þurfa eldri sjóðsfélagar sennilega að horfa upp á skerðingu á lífeyrisréttindum sínum. Eldri
borgurum, 65 ára og eldri, og aðstandendum ofbýður þessi framkoma við fólkið. Hvernig stendur á því að enn eru ákveðnir einstaklingar að sukka með peningana okkar?

Við þökkum fyrir hreinsanirnar í Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum en verkinu er ekki lokið. Það þarf að taka til í lífeyrissjóðunum svo þeir geti gegnt því hlutverki sem þeim er ætlað, að tryggja sjóðsfélögum góð lífskjör á efri árum. Velferð eldri borgara veltur á því að peningarnir þeirra séu notaðir rétt í þeirra þágu. Aldraðir hafa ekki efni á að borga hæstu laun á Íslandi.

Jóhanna, nú hefur þú tækifæri til að standa við orð þín um að velferð aldraðra gangi fyrir. Það er líka spilling í lífeyrissjóðakerfinu, þar þarf að taka til.

Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Það gengur ekki að lífeyrisgreiðslurnar okkar séu notaðar til að borga sukk örfárra einstaklinga í stað þess að þær séu nýttar í okkar þágu. Við höfum fengið nóg.

Image
Íslenskur ríkisborgari
Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Okkar Sjóðir.is

Postby Astijons » Mon 30. Mar 2009 12:18

eiginlega smá oftopic :P
haha

ég var að skoða viðbótarlífeyrissjóðinn minn... sem er buið að leyfa manni að taka úr...
en ég var buinn að borga 90 þusund í hann...
ávöxtunn var
-21 þusund!!
svo ég á freaking 70 þusund... haha
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Re: Okkar Sjóðir.is

Postby Davíð St. » Mon 30. Mar 2009 14:28

þessi viðbóta lífeyris er bara önnur leið til að ræna þig.. ert betur settur að leggja þetta inná bók sjálfur eða undir koddann

ég heyrði að þegar þú færð lífeyrir þá skattar skatturinn þig :D

sem sagt þú ert að borga skatt af sama peningi tvisvar sinnum.
Davíð
Davíð St.
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 35
Joined: Fri 06. Jun 2003 18:35
Location: Reykjavík

Re: Okkar Sjóðir.is

Postby shadow » Mon 30. Mar 2009 14:49

Neinei, þú borgar í lífeyrissjóðina af heildarlaununum þínum áður en þú borgar skatta..
shadow
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37

Re: Okkar Sjóðir.is

Postby jens » Mon 30. Mar 2009 14:54

Rétt viðbótarframleg er tekið fyrir skatt svo þú borgar bara skatt við útgreiðslu. Með að safna sjálfur inn á bók er gott og gilt en þá verður þú af viðbótarframlegi launagreiðanda eða 2 til 4% eftir afvikum.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests