by JonFreyr » Fri 27. Feb 2009 20:03
Lenti í árekstri 8. janúar 1998 og málinu er ekki enn lokið, fyrsti lögfræðingurinn var algjör spaði og hálfeyðilegði mitt mál. Flutti málið til Villa Vill hjá Landslögum og þessu verður lokað fyrir sumarið. Hryggskekkja sem hefur hrakið mig úr nokkrum störfum, sef mjög illa og þurfti að hætta lyftingum og hef ekki keppt í fitness í mörg ár. Fer vikulega í sjúkraþjálfun, nálastungu og geng með "spennitreyju" til að hjálpa mér að halda bakinu beinu. Hef versnað talsvert mikið síðustu ár og er aldrei verkjalaus, stanslausir krampar í brjósthrygg þar sem skekkjan er. Fór í sneiðmyndatöku haustið 2008 vegna aukinna verkja, brjósklos finnst á sama stað og skekkjan. Hlutirnir hafa bara versnað og mér fer ekkert fram, ég er verkjalaus í 1-3 tíma eftir nálastungu en svo byrjar ballið aftur. Ég hef gert allt sem læknirinn segir mér að gera, ég fer í þjálfun og passa mig að beita líkamanum rétt.
Fá sér góðan lögfræðing sem hefur gott orðspor, þarf að kunna inn á svona mál og nær eingöngu svona mál. Vera harður og passa sig rosalega á lögfræðingnum sem þú hittir í örorkumatinu. Ég fór óundirbúinn í mitt fyrsta viðtal í Húsi Gigtarfélagsins og var tekinn gjörsamlega í nefið af lögfræðingi sem lærði í USA og sérhæfir sig í því að losa tryggingafélögin við svokallaða "bóta-betlara" og þessir gaurar kunna sitt fag.
Þannig að svona mál eru ekki "ekkert mál" , ég var í 100% rétti þar sem að 17 ára strákur, sem var að spyrna á bíl pabba síns, missir stjórn á bílnum og kemur inn í hurðarstólpann hjá mér. Svona til gamans þá var hann á stórum og þungum jeppa og hraðinn var á milli 50-60 km/klst. þegar hann kemur inn í hliðina á mínum bíl. Fullt af vitnum og ummerki á staðnum staðfestu að um glæfraakstur var að ræða. SAMT hefur þetta verið endalaust vesen og sér fyrst fyrir endann á þessu núna.
My point ??? Undirbúa sig vel og fara til læknis þegar þú finnur til, allar heimsóknir eru skráðar og hjálpa ÞÉR þegar að matinu kemur. Að segjast finna oft til er nánast gagnslaust ef þú hefur ekki eitthvað sem styður við þær fullyrðingar, til dæmis læknaskýrslur sem votta að þú hefur verið hjá lækni vegna verkja sem má tengja við sjálft óhappið.
Volvo 945 Túúúúúrbó