Verð á hráolíu heldur áfram að lækka og hefur ekki verið lægra í heilt ár eftir því sem segir í hálffimmfréttum Kaupþings. Í New York hefur verð á hráolíu lækkað um 3,3 prósent í dag og selst tunnan til afhendingar í næsta mánuði á 83 dollara.
Hæst fór verðið á hráolíu í rúma 146 dollara um miðjan júlí síðastliðinn. Lækkunina í dag má meðal annars rekja til stýrivaxtalækkana hjá mörgum af stærstu seðlabönkum heims og versnandi aðstæðna á fjármálamarkaði.
„Í gær lækkuðu íslensku olíufélögin verð á eldsneyti og nam lækkunin á bensíni ellefu krónum á lítrann og þrettán krónum á lítrann af dísil olíu. Samkvæmt tilkynningu frá Skeljungi má lækkunina rekja til aðgerða Seðlabanka Íslands um að festa gengi krónunnar. Í dag tilkynnti hins vegar Seðlabankinn um að aðgerðirnar hafi ekki virkað sem skyldi og því óvíst hver næstu skref olíufélaganna verða," segir greiningardeild Kaupþings.
http://visir.is/article/20081008/VIDSKI ... 3367690/-1
þetta er náturlega bara grín