Miðað við hvernig gengið er búið að vera og virðist stefna er ég orðinn harðákveðinn í að senda bílgreyið úr landi.
Það er hvort eð er að koma vetur og bíllinn er óökufæri ef það sést hvítt á götunni, óseljanlegur með öllu á þessum árstíma og stöðu mála hér í dag þannig að það er þó skárra að hann standi úti og seljist kannski heldur en alls ekki hér heima.
Sömuleiðis get ég ekki séð betur en að þó maður setji hann á spottprís miðað við verð á sambærilegum bílum úti þá sé maður bara að koma út í yfir milljón í plús miðað við hvað sett er á hann hérna heima
Það sem mig vantar aftur á móti að vita er hverjir innfluttningstollar í þýskalandi eru
sömuleiðis þar sem ég komst ekki svo langt í dag, veit einhver hvað kostar orðið að fara með norrænu?