Hitaveitukerfi - málið leyst

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hitaveitukerfi - málið leyst

Postby thisman » Sat 27. Sep 2008 23:50

Er með eitt alvöru off-topic ef það skyldu vera einhverjir píparasnillingar hérna. Sé ekki betur en það leynist inni á milli fólk með ótrúlegustu þekkingu.

Nú voru kapparnir hjá Orkuveitu Reykjavíkur að gera við dreifikerfið í Hafnarfirði og skrúfuðu því fyrir heita vatnið í dag. Allt í góðu með það nema núna þegar það er aftur komið á þá eru allir ofnar hjá mér ískaldir og það er eins og það renni akkurat ekkert inn á þá - maður heyrir allavega ekki neitt slíkt. OR virðist því hafa tekist að drepa ofnakerfið hjá mér með þessum æfingum - hvernig sem þeir fóru að því. Neysluvatn í krönum er þó í góðu lagi.

Nú er þekkingin mín á þessu sviði akkurat engin en það fyrsta sem ég gerði var að tékka hvort það væri loft inni á einhverjum ofnanna, það virtist ekki vera. Næsta var að skoða grindina (sem mér finnst einmitt álíka flókið fyrirbrigði og faxtæki - með öllu óskiljanlegt) og ég sé að hitastigið frá því sem ég ætla að sé þrýstijafnari (grár lóðréttur plastsívalningur) inn á ofnakerfið er 20°C hjá mér en 60°C hjá nágrannanum (tvíbýli) og mælirinn hjá hitaveitunni haggast ekki áfram nema ég skrúfi frá krana meðan hann mallar rólega áfram hjá nágrannanum. Það er því eins og það sé akkurat ekkert að gerast í ofnakerfinu og ekkert vatn að renna inn á það.

Er einhver snillingurinn hérna með imbahelt ráð til að reyna að sparka þessu drasli í gang? Eða er einhver pípari hérna sem á séns á að taka að sér aukaviðvik (gegn greiðslu að sjálfsögðu) og kíkja á þetta hjá mér?
Last edited by thisman on Sun 28. Sep 2008 19:37, edited 1 time in total.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Bjarkih » Sat 27. Sep 2008 23:56

Ertu búinn að prufa að hringja í orkuveituna?
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby thisman » Sun 28. Sep 2008 00:04

Nei, ég fattaði þetta bara í kvöld og get því ekki náð í þá fyrr en á mánudag væntanlega - ætla þó að prófa að hringja og athuga hvort þeir hafi einhver ráð. Það er þó ekkert að þeirra kerfi þar sem það er greinilega að koma heitt vatn inn á kerfið því þegar ég skrúfa frá krana inni þá fer teljarinn frá þeim á fullt og það er sama lögnin og fer síðan inn á ofnakerfið.

Það hefur bara eitthvað ruglast þegar vatnið datt út í dag og ég er að vonast til að það sé nóg að "dangla í eitthvað" til að þetta hrökkvi í gang.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Bjarkih » Sun 28. Sep 2008 00:18

Veit ekki hvort þetta hjálpi:

Bilanir utanhúss verður að tilkynna tafarlaust til Orkuveitu Reykjavíkur. Hægt er að tilkynna til vaktstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur í síma 516-6200. Þar er opið allan sólarhringinn alla daga ársins. Bilanir innanhúss eru nær alltaf á verksviði pípulagningarmeistara eða annarra fagmanna á sviði pípulagna.
meira
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Lindemann » Sun 28. Sep 2008 02:40

...
Last edited by Lindemann on Sun 28. Sep 2008 15:02, edited 1 time in total.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby grettir » Sun 28. Sep 2008 08:36

Píparinn sem skipti skipti um kerfið hjá mér sagði mér að það væri mjög algengt að þrýstijafnarar sem væru orðnir tæpir þyldu ekki að þrýstingurinnn væri tekinn af kerfinu.
Þegar þrýstingurinn er tekinn af, falla allskyns agnir sem eru í rörunum
niður "á botn" í rörinu og svo þegar þrýstingurinn er settur á aftur, fer gumsið af stað og getur stíflað og skemmt þrýstijafnarann.

Ef hann lekur ekki er reynandi að skrúfa frá honum og fyrir hann og athuga hvort það liðkast ekki eitthvað til og hann hleypir í gegnum sig.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Stanky » Sun 28. Sep 2008 14:58

tharft liklega ad lata taka upp thrystijafnarann, lattu taka hann upp, nyr kostar mordfjar. Getur haft samband vid almennu pipulagningathjonustuna, hann tok upp jafnara fyrir mommu og pabba.

En ad sjalfsogdu tharf ad bilanagreina fyrst :)
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Jónas Helgi » Sun 28. Sep 2008 17:58

Prufað að taka ofnhausana af, yfirleitt með mínus skrúfjárni eða sexkant og þá sérðu svona lítinn titt sem hausinn stillir upp og niður. Mynd: http://hiti.danfoss.com/Product/130806.jpg
Prufaðu að taka skiptilykil eða eithvað slíkt og þrýsta honum niður (hann fer alltaf sjálfkrafa upp aftur) þangað til að hann verður laus.
Hann stífnar með tímanum og það festist drulla inní þessu.
Chrysler Crossfire 3.2L 05' *Í notkun*

E46 325i Limousine 04' *SELDUR*
Kawasaki KX 250F 05' *SELT*
User avatar
Jónas Helgi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 320
Joined: Tue 05. Dec 2006 23:11
Location: Grafarholt, Reykjavík

Postby Jónas Helgi » Sun 28. Sep 2008 17:59

Prufað að taka ofnhausana af, yfirleitt með mínus skrúfjárni eða sexkant og þá sérðu svona lítinn titt sem hausinn stillir upp og niður. Mynd: http://hiti.danfoss.com/Product/130806.jpg
Prufaðu að taka skiptilykil eða eithvað slíkt og þrýsta honum niður (hann fer alltaf sjálfkrafa upp aftur) þangað til að hann verður laus.
Hann stífnar með tímanum og það festist drulla inní þessu.
Chrysler Crossfire 3.2L 05' *Í notkun*

E46 325i Limousine 04' *SELDUR*
Kawasaki KX 250F 05' *SELT*
User avatar
Jónas Helgi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 320
Joined: Tue 05. Dec 2006 23:11
Location: Grafarholt, Reykjavík

Postby Djofullinn » Sun 28. Sep 2008 18:38

Virkar líka að berja á tittinn sem Astro talar um
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby thisman » Sun 28. Sep 2008 19:34

Þakka alveg stórgóð viðbrögð!

Ég fór að ráðum nágrannans sem ráðlagði að hleypa tappa vatni af kerfinu þangað til þrýstijafnarinn færi aftur að hleypa vatni inn á sig og eftir að ég var búinn að tappa einhverjum lítrum af þá rauk kappinn í gang og hefur virkað fínt síðan og allt orðið funheitt. Gæti ímyndað mér að það hefði líka virkað ráðið fyrir neðan að skrúfa fyrir hann og á til að reyna að liðka en það kom ekki til þess að ég þyrfti að prófa það.

Varðandi tittina þá voru þeir allir sprækir og fínir, var búinn að tékka á þeim flestum.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 18 guests