Er semsagt með ford ranger 96 model og langaði til að fá að vita hvort að einhver af ykkur dytti í hug hvað vandamálið væri.
Var semsagt að tengja útvarpið í hátalara sem ég er með í honum, þetta er ekki orginal útvarpið þannig að það eru fullt af lausum snúrum þarna sem tengjast ekki í neitt, um leið og ég var búinn að tengja hátalaran ætlaði ég að starta honum en ekkert gerist, ég hélt að hann væri kanski rafmagnslaus og fékk annan bíl til að gefa mér straum enn ekkert gerðist, er búinn að athuga með öryggin og þau eru í góðu lagi. Þegar ég reyni að starta honum þá bókstaflega gerist ekki neitt, það er eins og að það sé eitthvað sambandsleysi (að ég held) það heyrist smá svona "klikk" hjá öryggisboxinu (er undir húddinu) en ekkert annað geris.
Startarinn hefur verið eitthvað slappur áður en að þetta gerðist, þegar ég svissa á þá er hann mjög þungur í gang en fer samt alltaf í gang.
Ef þið hafið einhverja hugmynd um þetta endilega kommentið.
Kv. Ívar
