by bebecar » Tue 19. Aug 2008 06:47
Kínverjar eiga stóran hluta af skuldum USA og framleiða mjög stóran hluta af þeirra neysluvörum og eru nú í raun byrjaðir að flytja út verðbólgu til USA. Kínverjar eru auk þess í náðinni í mið austurlöndum og í afríku og hafa því góðan aðgang að náttúruauðlindum - eitthvað sem bandaríkin telja sig verða að berjast fyrir.
Einhvern tímann áttar almenningur í bandaríkjunum sig á því að það er verið að setja landið á hausinn með þessari utanríkisstefnu sem þar er rekin - það er bara spurning hve djúpt landið verður sokkið þegar það gerist.
Pólitíkusar sitja í sínum störfum vegna þess að það er hægt að láta þá sæta ábyrgð enda bera þeir beina ábyrgð á sinni stefnu. Herinn t.d. hann sætir ekki ábyrgð eins né neins sem er akkúrat ástæðan fyrir því að hann á að vera valdalaus. Það er hann hinsvegar ekki í dag þar sem hann er með forsetann í vasanum. Menn geta svo valið um ástæður afhverju það er. Er hann of trúaður, er hann að púkka undir viðskiptafélaga, er hann vitlaus o.s.frv.
En þetta með skoðanaskiptin - ég held það sé einmitt vandamál flestra þessara manna að þeir hafa engar skoðanir aðra en þá að ná kjöri - hvað sem það kostar. Pólitíkusar eiga að standa og falla með sínum skoðunum - ekki skipta um skoðanir eftir því hvað er líklegast til að falla í kramið hjá kjósendum. Ef þú eltir kjósendur þá verða til einskonar samhljóða skoðanir sem spegla ekki endilega vilja kjósenda og verður það jafnframt til þess að draga úr skoðana litrófinu. Líklega vantar fleiri róttæklinga í dag, gamla sótrauða kommúnista og þessháttar því það er eina leiðin til að tryggja skynsamlegar raddir í andófi. Það getur hugsast að USA sé að nálgast þann punkt enda er þetta sífellt að verða fasistalegra ríki (ekki í fyrsta skiptið reyndar sem gefur manni einnig vonir að þetta lagist, eins og síðast (Hér er vísað í Hoover ofsóknirnar)).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road