Myndi kannski halda að 390þ væri nærri lagi fyrir þessa Mözdu, en ekki mikið minna en það. Svona eintök ættu að fara í góðar hendur, og þeir sem sjá svona bíla sem 50þús kr. druslur ættu ekkert að eignast þá hvort eð er.
En talandi um verð á bílum, hvað er með þessa okurprísa á Golf GTi?
Sá um daginn óbreyttan ´05 bíl ekinn um 50þús með ásett 3.5m. Líklega er það bara vegna lánastöðu, en burtséð frá því virðast þessir bílar hanga endalaust í ca. 2.7m.
Og hvað þá Edition 30 bílarnir, slefandi í 5 milljónir. Myndi halda að þeir ættu að vera í ca. 3.5m núna

hef verið að fylgjast með gti bílunum og það er bara bull, sá edition 30 keyrðan 15k á 4,8