gstuning wrote:
Ingvar þú ert að flækja afl breytingum frá oktan við það sem er eðlilega kallað vélarbreytingar,. Afl aukning kemur frá breytu loftflæði, mixtúru og kveikjutíma, engu öðru.
Ég er nú ekki að rugla því heldur margsinnis búin að nótera sama skilning á því, þú ert bara búin að bíta það í þig að ég sé ekki að skilja þig. Þetta er það sem ég er búin að vera að tönnlast á... hærri oktan tala leyfir breytingar (á loftflæði, mixtúru og kveikjutíma) sem skila meira afli.
En þá hlýtur þú að útskýra niðurstöðurnar hjá Fifth Gear þannig að bílarnir séu allir, nema vísitölubíllinn, tjúnaðir fyrir sömu oktantölu og Optimaxið er (97 eða 98 ron) ekki satt?