Vandamál með internetið [Tölvusnillingar - HJÁLP]

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Vandamál með internetið [Tölvusnillingar - HJÁLP]

Postby _Halli_ » Mon 12. May 2008 20:10

Jæja, nú vona ég að það séu einhverjir algjörir tölvusnillingar hérna á spjallinu...

Það er eitthvað undarlegt í gangi með internetið hjá mér.

Í seinustu viku byrjaði ég á að taka eftir því (auðvitað fyrst af öllu) að ég gat ekki loggað mig inn á MSN. Svo eftir að hafa flakkað aðeins um netið þá kom í ljós að sumar vefsíður virkuðu ekki. Ég er með ljósleiðara hjá Hive í gegnum Gagnaveitu Reykjavíkur, og þegar ég tala um að síðurnar virki ekki, þá semsagt kemur upp innskráningarsíða frá Gagnaveitunni:

Image

Ég er búinn að tala bæði við Hive (Tal) og Gagnaveitunna og þeir segja að þetta hljóti að vera vandamál hjá mér. Eina sem þeir gátu sagt mér að prufa var að gera eitthvað DNS flush, sem hjálpaði ekkert.

Fyrir helgi þá datt netið alveg út í 2 daga (kom semsagt bara 404 error alltaf) og svo varð það aftur þannig að random síður virkuðu, og síðan lagaðst það alveg af sjálfu sér. Og nú er það aftur byrjað að bögga mig, semsagt bara random síður virka.

Til að skýra þetta random dæmi, þá er það ekki eins og heilu síðurnar virki ekki, t.d. virkar Krafturinn alveg, og hefur aldrei dottið út, en ég sé ekki alla broskallana og ekki heldur "Ný innlegg" myndina. Svo opna ég Kraftinn aftur eftir klukkutíma, og þá koma allar myndirnar fram. Eins með aðrar síður, stundum virka þær, stundum virka þær ekki, og stundum hlaðast þær kannski 50% og svo forwardast ég inn á Gagnaveitusíðuna.

Annað til að útskýra þessa sýru:
- Myspace virkaði bara á spænsku í gær, en virkar núna á ensku. (og það eru bara sumar myndir sem birtast)
- Google.is virkar, en ekki Google.com (Update: Var þannig fyrir hálftíma, en núna virðast bæði lénin virka)


Vona að þið skiljið eitthvað í þessu bulli, ég er kannski ekki alveg að koma þessu rétt frá mér.

Er einhver sem skilur eitthvað í þessu og dettur hugsanlega ástæðu í hug?? Eða liggur vandamálið hjá Gagnaveitunni eða Hive og ég þarf bara að rífa meiri kjaft við þá til að fá tæknimann á svæðið?
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Postby IceDev » Mon 12. May 2008 20:24

Líklegast eitthvað vandamál með DNS hjá þér. Spurning að fá þá til að reseta login-inum inn á Orkuveitunetið. Virkar stundum
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Arnarf » Mon 12. May 2008 20:34

Ég hef stundum lent í því að að flestar síður hætti að virka, nema einstaka síður, en samt er virkar msn og torrent
Þá hef ég prufað að breyta local IP tölunni minni og það hefur oft reddað þessu

Spurning hvort þetta hafi e-ð með DNS að gera, veit ég ekki



Kannski tengist þetta vandamálinu þínu ekkert, en maður veit aldrei, væri líka gaman ef einhver vissi skýringuna á þessu hjá mér
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby Brútus » Mon 12. May 2008 20:40

las um svipað vandamál á netinu
http://forums.di.fm/archive/index.php/t-108134.html

þarna var maður með svipað vesen. Hann var að nota PeerGuardian

"I figured it out. It was PeerGuardian's fault. The trick is to disable the filters before you exit the program. Apparently, just stopping the program isn't enough... *sigh*

but you should have heard how confused the Comcast guy was :funny"


Það er mælt með þarna að prufa að pinga síður. Þú getur pingað með að fara í start - run - skrifa þar "cmd" (án gæsalappa) og skrifað svo til dæmis
"ping www.bmwkraftur.is" eða
"ping www.myspace.com"
bara eina slóð í einu og þá getur þú séð hvort að þú fáir svar þar og getur líka prufa að að gá hvort að þú komist inn á síðurnar bara með að slá inn ip tölurnar.
Samt sem áður þá hef ég lent í svipuðu veseni með eldveggi og svo var Norton líka einusinni mikið í því að blocka allskonar hluti sem að hann átti ekki að blocka og spurði ekki um leyfi.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby _Halli_ » Mon 12. May 2008 20:50

Þakka skjót svör!! :D

Brútus wrote:las um svipað vandamál á netinu
http://forums.di.fm/archive/index.php/t-108134.html


Þetta varð náttúrulega að vera ein af þeim síðum sem ég get ekki skoðað :lol:

Ég prenta þetta út í vinnunni á morgun og kíki á þetta, vona að þetta virki! :)

Er ekki að nota PeerGuardian en ég kannski finn einhver góð svör þarna!
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Postby Brútus » Mon 12. May 2008 20:57

Já. . :D
Virkar ekki að opna síður heldur í gegnum t.d.

www.hidemyass.com

http://www.sureproxy.com/

eða ip á sureproxy
http://69.10.36.3/

Jæja þú finnur allavega vonandi út úr þessu.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby Aron Fridrik » Tue 13. May 2008 01:49

ég hef lent í þessu á 2 tölvum.. endaði á því að setja inn DNS tölurnar manual í stað þess að tölvan fann það auto..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby moog » Tue 13. May 2008 02:17

Ef þetta er ekki DNS vandamál í tölvu(m) hjá þér, þá þarf þetta að skoðast hjá ISP (Internet Serivice Provider), í þínu tilfelli TAL (Hive). Eins og kerfið hjá GR (Gagnaveitu Reykjavíkur) fúnkerar þá væri gott test fyrir þig að beintengja lappa (ef þú ert með einn slíkan, geri fastlega ráð fyrir því) beint Telsey boxið, framhjá Router, með því þá ertu að skrá þig með nýrri MAC addressu inn á boxið og átt þ.a.l. að fá nýja IP tölu úthlutaða... Kannaðu hvort það hjálpi þér eitthvað, Einnig að Prófa OUT2 á Telsey.
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 71 guests