http://www.visir.is/article/20080422/FRETTIR01/192054074
Quote:
Tók bílinn af syni sínum eftir kvörtun lögreglu
Lögreglan á Akranesi fær æ fleiri kvartanir vegna ógætilegs aksturslags nú þegar farið er að vora.
Kvartað var ítrekað undan hraðakstri og spyrnu sama ökumanns í liðinni viku en hann neitaði öllum sakargiftum í viðræðum við lögreglu. Voru foreldrar hans látnir vita af afskiptum lögreglu og því að ítrekað hefði verið kvartað undan honum.
Móður hans leist ekki betur á en svo að hún tók bifreiðina af drengnum sem var ekki kátur við lögreglu næst þegar fundum þeirra bar saman, eins og segir í dagbók lögreglu.
