Langaði bara að koma þessu á framfæri.
Ef menn fara að væla út af verði á dekkjum á Íslandi á komandi vortörn.
Dekk hjá íslenskum söluaðilum eru að fara að hækka í verði um 15-20%.
Meira í fólksbíladekkjum en það hækka líka jeppadekk og vörubíladekk etc..
Mig langaði bara að benda mönnum hér á þetta svo þeir ættu smá séns að ná sér í dekk núna áður en það hækkar allt.
Ástæða hækkunarinnar er hærra verð frá birgjum úti, sökum hærra verðs á olíu sem er notað í gúmmíið.
Sú veigameiri ástæða er þó gengi evrunnar. Gengi Evrunnar er búið að hækka um 22% frá sama tíma í fyrra.
Flest dekk innkeypt til Íslands eru greidd í Evrum.
Með kveðju,
Skúli Rúnar
Aðstoðarlagerstjóri Dekkjalager N1



