Kristjan wrote:
hmmm efri er ekki BMW, það er ég nokkuð viss um.
Þessi efri er BMW 340, smíðaðir á árunum 1949-1953.
Þeir voru einnig kallaðir EMW 340 vegna þess að þeir voru settir saman í verksmiðju í Eisenach.
Svo EMW stóð fyrir Eisenach Motoren Werke.
Hérna er eitthvað smá sem ég fann wikipedia
BMW / EMW 340
P.s. Ég flutti einn flottann í fyrra eða hittifyrra, minnir að það hafi verið BMW 501 árgerð 1956, minnir að maðurinn hafði sagt að þetta hafi verið fyrsti BMW-inn sem var fluttur til íslands. Ég var ekkert smá skotinn í þessum bíl.
Hann var dökkblár, þegar ég flutti hann þá var skelin alveg tilbúin, það átti eftir að setja vélina, sætin, chromið og allt inn í og á bílinn.
Það væri gaman að sjá hvort einhver veit eitthvað um þann bíl hérna.