Þetta var enginn fullyrðing heldur getgáta og var kannski full harðorðuð.
Lántökugjöld fara nú yfirleitt inn í lánið nema kannski húsnæðislán, man ekki hvernig því er háttað. Það er ansi mikið af fólki sem getur ekki sparað, bæði af því það kann það ekki og hefur ekki vilja eða hefur ekki efni á því. En það er ansi margir sem geta tekið þennnan skerf sem þarf, hvort sem það er til húsnæðis bíla eða annara hluta frá mánaðarlegum útgjöldum ef hann þarf að fara í einhvern hlut. Þá hjá fólkinu sem getur sparað en gerir það ekki þá fer allavega smá hluti af innkomu í það að borga eitthvað sem þú ert að eignast, eða þeir sem hafa ekki efni á að sparað, hliðra þá til og gera það sem til þarf til að borga af hlutnum.
En það hljóta allir að vita að í flestum ef ekki öllum tilvikum er MUN óhagstæðara að taka lán fyrir hlutnum heldur en að geta staðgreitt hann. Auðvitað er þetta lánarugl komið út í vitleysu. Þegar fólk er farið að taka lán til að fara til útlanda, kaupa afþreyingargræjur á heimilið eða bara til að gera eitthvað er maður alveg kominn yfir strikið, ef ekki fyrir löngu þegar maður keypti hús og bíl

Og stóra námslánið sem námsmenn eru hvattir til að taka. Hvaða skilaboð eru það til ungs fólks þegar því er ráðlagt að taka námslán, þá er verið að segja við þig að ´það sé rétt að taka bara lán og þetta reddast. Eyddu bara meira.
En ef fólk hefur efni á því að standa á skil við lánin sín, vera ekki að stilla sér upp við vegg með og vera á tæpasta vaði hver mánaðarmót þá er þetta bara í góðu lagi.
Svo er það þetta að safna, okey, gefum okkur að 5 manna fjölskylda sé einhversstaðar útí bæ, á bíl og hús og sinnir þessu reglubundna lífi. Þeim leggst það til að án þess að skerða lífsskylirði geti þau lagt fyrir 28 þúsund krónur á mánuði. Það gerir 336000 yfir árið án allra vaxta. Þau eru ekki byrjuð á þessum sparnaði þar sem þau voru að flytja í íbúðina sína og eru að koma sér fyrir. Skyndilega er er 4 barnið á leiðini og fjölskyldubíllinn þeirra eyðileggst þar sem það er kveikt í honum. Þau eru ekki með kaskótryggingu á bílnum, hafa alltaf verið heppin og dugleg og aldrei lent í svona veseni. Þannig það kemur að því að það þarf að kaupa nýjann bíl, hvort sem hann er notaður eða nýr. Hann þarf að vera í góðu lagi, nýlegur, tiltörlega lítið ekinn og bilanafrír eða allavega lítill rekstarkostnaður og 7 manna.
Á svona fólk bara að spara,? já spörum bara núna í 1 ár og kaupum okkur bíl fyrir 400 þúsund sem uppfyllir okkar þarfir. Tökum bara strætó þangað til.
Þó Þetta sé fáránlegt dæmi þá sjáum við ekki alltaf allar hliðar á málinu. Auðvitað hehfðu þau átt að vera löngu byrjuð að spara og eiga varasjóð fyrir tilfelli eins og þetta eða bara til að nota í sumarfríinu.