bjahja wrote:Við erum að leggja þetta ofaná Floore hitadæmi ( www.hringas.is ) flöturinn var eiginlega alveg sléttur undir því, við þurftum að flota smá.
Við erum með 30x60 náttúruflísar, 3mm fúgu, flísarnar eru með hvössum kanti.
Við leigðum stærstu sögina í Byko og erum með hanska (((reyndar ekki heyrnarhlífar en við sögum úti þannig að það er A OK)
Við erum búnir að skipuleggja allt og komnir vel á veg með að líma. Erum bara ánægðir með þetta so far
Þetta hljómar nokkuð vel
Ef flöturinn er nokkuð sléttur þá þarftu spaða (fyrir límið) sem er með
álíka stóra ferhyrninga og þetta letur, skiptir miklu málið límið sé jafnt.
þessi mynd lýsir þessu vel..



