bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 03:56

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 
Author Message
PostPosted: Fri 19. Oct 2007 11:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Er einhver með á hreinu hvernig ferlið er við að skila inn tjónaskýrslu? Eftir minni bestu vitneskju hefur maður um 7 virka daga til að skila inn skýrslu til tryggingafélagsins frá dagsetningu skýrslunar, ef maður skilar ekki inn þá er skýrslan hjá þeim skilaði tekin gild.

Gaurinn sem klessti á e30 hjá mér um daginn skilaði ekki inn skýrslu til vís og þegar ég var ekki búinn að heyra neitt í 3 vikur tjekkaði ég á málinu. TM sendir þeim svo skýrsluna mína og þau senda hinum aðilanum bréf sem gefur honum 10 daga til að koma henni til skila.

Mér finnst þetta eitthvað ekki rétt. Getur maður virkilega trassað að skila inn skýrslu í nokkrar vikur án þess að ekkert sé gert? nema að aðilinn sem er heiðarlegur kemur henni til hins tryggingafélagsins?

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Oct 2007 14:26 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Ég rakst aftan á jeppa í fyrravetur og leit það sem mitt tjón og var ekkert að stressa mig á að skila skýrslunni.

Við vorum báðir hjá TM.
Viku seinna sendi TM mér ítrekun um að koma með skýrsluna sem ég gerði og þá var búið að borga jeppakallinum 50.000 fyrir rispuna á króknum.

Væntanlega þarf Vís að borga þér og það eru þeir sem eru að draga lappirnar og ekki í fyrsta sinn :?

Engu að síður hefðu TM menn átt að reka á eftir þeim því til að tryggja að þú fengir borgað. Kannski hefðirðu bara átt að mæta með bílinn í tjónaskoðun hjá Vís til að reka á eftir þessu :)

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Oct 2007 14:55 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Jun 2003 23:13
Posts: 381
Location: Reykjavík
til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Oct 2007 14:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Bjössi wrote:
til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila


Sumir kalla þetta "tilganslaust útkall á Lögregluna" en fyrir alla muni, Lögreglan er þarna til að verja hagsmuni fólks, nýtið það.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Oct 2007 15:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Geirinn wrote:
Bjössi wrote:
til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila


Sumir kalla þetta "tilganslaust útkall á Lögregluna" en fyrir alla muni, Lögreglan er þarna til að verja hagsmuni fólks, nýtið það.


Ég var einusinni farþegi í bíl sem keyrði aftaná annan á háannatíma á Kringlumýrabraut. Hringdum á lögregluna og biðum í 30 mín áður en einhver kom. Þá gafst hinn aðilinn upp á biðinni og fór. Hann gerði ekki tjónaskýrslu vegna þess að við höfðum ekki svoleiðis í okkar bíl og hann ekki í sínum. Við ákváðum samt að bíða eftir lögreglunni þar sem við töldum bílinn ekki ökuhæfan í því ástandi sem hann var. Biðum í klukkutíma í viðbót og þá hringdi ég og tilkynnti lögreglunni að við gáfumst upp á biðinni og fórum.

Það merkilega var að það keyrði lögreglubíll framhjá okkur í rólegheitunum og gerði EKKERT í því að það voru tveir bílar komnir upp á umferðareyju, annar í mauk að framan og hinn að aftan svo það var ekki hægt að loka skottinu.

Svo í öðrum árekstri þar sem keyrt var í hliðina á bílnum mínum á áramótunum eftir að strákur vanvirti biðskyldu (ég gruna að hann var drukkinn miðað við hraðann á honum). Þar kölluðum við til lögreglu. Það kom stuttu seinna einn bíll og lögreglumaðurinn spurði hvort það hefðu orðið meiðsl á fólki. Ég svaraði að það voru engin alvarleg meiðsl. Þá réttu þeir mér tjónaskýrslu og fóru. Sögðust hafa eitthvað mikið betra að gera niðri í bæ. Eftirá var ég mjög reiður útí lögregluna að hafa ekki einusinni látið mig né hinn ökumanninn blása því ég er nokkuð viss um að hann var undir áhrifum, bara hafði ekki vit á því á "slysstað" þar sem ég var í miklu áfalli enda harður árekstur sem ég var alls ekki að búast við.

Þetta varð til þess að ég hef núna ekkert álit á lögreglunni til að hjálpa mér þegar ég lendi í árekstri og hef einusinni lent í árekstri síðan og datt ekki til hugar að hringja á lögregluna þá.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Oct 2007 00:54 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Posts: 939
Location: njarðvík
hef lent í 3 árekstrum bæði á fólksbíl og vörubílnum sem ég vinn á og alltaf kallað til lögreglu en lögreglan hefur alltaf neitað að sjá um þetta hafa annað að gera að þeira sögn sama hvort þetta sé á annatíma eða ekki og meiraðseigja hefur neiðarlínan einu sinni neitað að senda lögregluna á staðinn þar sem aldrei var slis á fólki. þetta er farið að vera helvíti fúl vinnu brögð hjá þeim. hækka segtir og minka þjónustu (farnir að vera aðeins of upteknir á því að takka fólk sem er 10 km yfir hámarkshraða fynst mér )

_________________
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Oct 2007 03:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
crashed wrote:
hef lent í 3 árekstrum bæði á fólksbíl og vörubílnum sem ég vinn á og alltaf kallað til lögreglu en lögreglan hefur alltaf neitað að sjá um þetta hafa annað að gera að þeira sögn sama hvort þetta sé á annatíma eða ekki og meiraðseigja hefur neiðarlínan einu sinni neitað að senda lögregluna á staðinn þar sem aldrei var slis á fólki. þetta er farið að vera helvíti fúl vinnu brögð hjá þeim. hækka segtir og minka þjónustu (farnir að vera aðeins of upteknir á því að takka fólk sem er 10 km yfir hámarkshraða fynst mér )


Que?

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 24. Oct 2007 18:59 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 05. Oct 2005 23:55
Posts: 63
Location: Grafarvogur
ég skilaði inn 4 mánaðar gömlu tjóni einu sinni og fékk það alveg bætt. Reyndar bara kaskó tjón eftir eigið óhapp ekkert skemmdist nema mitt ökutæki.

kannski annað með árekstur?

_________________
Arnór Páll Kárason
Apk


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 20 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group