Quote:
Heavenly Sword mun gera það sama fyrir
Playstation 3. Hann er eins og 1969 Chevy, með 396 headpakkningu,
Bruce Springsteen í framsætinu étandi eplaböku, drekkandi ískaldan
Budweiser og spilandi á þrjá rafmagnsgítara í einu. Svo einfalt er það.

EDIT: Hér er þetta allt..
Quote:
Ævintýra og bardagaleikurinn Heavenly Sword kom út í gær.
Leikurinn er aðeins fáanlegur á Playstation 3 og mun eflaust
laða marga kaupendur að tölvunni. Hann er í einu orði sagt
svakalegur, í tveimur orðum sagt svakalega svakalegur.
Einhver svakalegasti tölvuleikur síðari ára lenti í verslunum á
klakanum í gær. Leikurinn heitir Heavenly Sword og er nokkurs konar
blanda af ævintýra og bardagaleik, ekki ósvipað og God of War leikirnir
vinsælu. Leikmenn fara í hlutverk ofurskutlunnar Naríkó, sem getur
ekki aðeins myrt menn samviskulaust eins og að drekka vatn, heldur
gæti hún líklega náð frama innan „soft-core” klámiðnaðarins, ef hann
þrífst einhversstaðar ennþá. Saga leiksins er auðvitað afar hæpin, en
menn verða að vera tilbúnir að setja sig í réttar stellingar. Naríkó er
hluti af fornum ættbálki sem hefur öldum saman varðveitt hið himneska
sverð sem býr yfir kosmískum kröftum. Sá sem veldur sverðinu glatar
hægt og bítandi lífi sínu, en aðeins guðir geta valdið því. Þegar hinn illi
King Bohan, sem minnir mest á handrukkara í meðferð reynir svo að ná
sverðinu, á Naríkó engra annarra kosta völ en að grípa til vopnsins og
vona það besta. Sverðið sjálft býður upp á bardagaatriði sem myndu
fá Jet Li til þess að rífa úr sér miltað. Sverðið er hægt að nota sem
tvö minni sverð, tvær keðjur eða eitt risastórt sverð, eftir því hvernig
leikmaðurinn er stemmdur. Heavenly Sword er eins og frumleg, „soft
core” klámmynd eftir Tarantino. Hann gerist í „flashbacks” og því sérstök
upplifun að spila hann. Þá minnir umhverfi leiksins helst á himnaríki,
sem hrapað hefur niður í helvíti. Skemmst er frá því að segja, að fáir
leikir standast Heavenly Sword snúning þegar það kemur að grafík og
spilun. Allt að þúsund harðsvíraðir stríðsmenna geta birst á skjánum
í einu, og það er náttúrulega ekkert grín. Kyle Shubel, sem framleiðir
leikinn, segir að Playstation 3 sé eina tölvan sem mögulega gat keyrt
hann. Þá býður leikurinn einnig upp á skemmtilegan fítus, en menn
geta stjórnað örvum, fallbyssukúlum og öðrum skeytum með því að
hreyfa fjarstýringuna, svona eins og þegar Nintendo Wii God of war sló
eftirminnilega í gegn á Playstation 2 og tryggði tölvunni réttan sess í
hjörtum tölvuleikjaelskenda. Heavenly Sword mun gera það sama fyrir
Playstation 3. Hann er eins og 1969 Chevy, með 396 headpakkningu,
Bruce Springsteen í framsætinu étandi eplaböku, drekkandi ískaldan
Budweiser og spilandi á þrjá rafmagnsgítara í einu. Svo einfalt er það.