400d er auðvitað bara uppfærð 350d, mér persónulega finnst 400d mjög góð, einföld og þæginleg í notkun.
18-55 linsan sem fylgir með er bara ódýr kit linsa, myndi frekar kaupa bara boddý og svo einhverja betri linsu með, kostar meira en færð miklu betra dót í staðin.
Quota bara beint í Villý frá svipaðri umræðu á l2c
Dezzice wrote:
Nýherji hætti ekki að selja 350D bara af því 400D var betri. Nýherji hætti að selja 20D þegar 30D kom, þ.e. þeir klára lagerinn sinn og taka svo að sjálfsögðu inn nýju vörurnar.
Það sama gilti með 350D og 400D. 350D var enn til í einhverju magni þegar 400D kom og menn höfðu þá option á að kaupa sér hana enn, en um leið og 350D kláraðist á lager var hún að sjálfsögðu ekkert pöntuð inn aftur.
400D var að sjálfsögðu upgrade fyrir 350D, engin spurning. Hún fékk að sjálfsögðu betri fídusa eins og hærri pixla (10.1), sensor cleaning, stærri skjá og eitthvað meira. Ég hef nú reyndar ekki heyrt að 350D sé að fá einhverja betri dóma, heldur finnst mér frekar að vélarnar séu að koma mjög svipað út í könnunum. Eina ástæðan sem ég hef séð að menn velji frekar 350D er að hún er ódýrari. Hef reyndar ekki heyrt það að sensor cleaning dótið sé eitthvað rusl, heyrist frekar á öllu að menn séu sáttir við það.