Á bara næstum ekki til orð!!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Geirinn » Sun 25. Feb 2007 20:46

Þetta er greinilega mismunandi.

Það sem mér virðist mjög ljóst er að um 80% af þeim sem eru tiltlaðir sölumenn í fyrirtækjum kunna ekki að selja, vilja ekki selja eða geta ekki selt.

Ég hef verið að leita mér að ákveðinni vöru í nokkrar vikur og viðmót sölumanna gagnvart mér, tvítugum dreng, hefur mjög sjaldan verið í himnalagi :)

Hins vegar sést það fljótt ef sölumenn eru topp manneskjur, maður hefur mætt þannig fólki líka.

En það sem hefur komið mér mest á óvart í mínum leiðangrum, bæði í fyrirtækjum sem menn hér stæra hátt og öðrum... er hvað sumir eru ótrúlega óþolinmóðir og jafnvel DÆSA upp í opið geðið á manni.

En já, bílasölustéttin er stórmerkileg.

Fyndið :lol:
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby íbbi_ » Sun 25. Feb 2007 22:08

ég skil þetta bara mjög vel,

ég man þegar ég bað um að fá að prufa camaroin minn á bílasölu í fyrra, þegar ég labbaði að bílnum var ég alveg daamn .. aldrei myndi ég leyfa reynsluakstur á þessum bíl, svo prufaði ég hann VEL og hressilega, en varð líka bara að eignast hann og keypti hann, var svpo að spjalla við jón ragnar seinna sama dag og þá hafði hann flengt hann líka meðan hann var á sömu sölu
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Einsii » Sun 25. Feb 2007 23:03

Ég held að sumir hér séu ekki að ná pointinu. Það er ekkert að því að takmarka reynsluakstur á svona bílum, og einmitt helst að hafa eiganda eða sölumann með.
En að setja þetta svona orðað inn í auglýsingu sem er mjög lýklega það fyrsta sem mögulegur kaupandi sér, það er bara rosalega fráhrindandi.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Bjarki » Sun 25. Feb 2007 23:03

Það er klárt mál að þetta er vandamál, þ.e. aðilar sem fara rúnta á milli bílasala og vilja taka hringi á bílum sem þeir eru ekki að fara að kaupa, stundaði þetta sjálfur á árum áður. Þetta var bara eins og að fara í keilu eða sund!
En málið er bara hvernig bílasalar leysa þetta mál, þessi auglýsing sem vísað er í er að mínu mati dæmi um lélega lausn á þessu vandamáli.
Ungir strákar(stelpur) með áhuga á bílum en ekki fjármagn koma til með að eldast og efnast, ekki allir en margir a.m.k.
Þessir sömu aðilar eiga vini, fjölskyldu, kunningja, skrifa á spjallborð......
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Jón Ragnar » Sun 25. Feb 2007 23:11

íbbi_ wrote:ég skil þetta bara mjög vel,

ég man þegar ég bað um að fá að prufa camaroin minn á bílasölu í fyrra, þegar ég labbaði að bílnum var ég alveg daamn .. aldrei myndi ég leyfa reynsluakstur á þessum bíl, svo prufaði ég hann VEL og hressilega, en varð líka bara að eignast hann og keypti hann, var svpo að spjalla við jón ragnar seinna sama dag og þá hafði hann flengt hann líka meðan hann var á sömu sölu



Þekkti bílasalan reyndar MJÖG vel

Fékk að testa 645ci líka :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 62 guests