by Svessi » Fri 22. Dec 2006 19:11
Bara svona til að bæta inn í þetta, ég keypti mér panasonic miniDVD vél í Þýskalandi fyrir næstum 800 evrur síðastliðinn september og er alls ekki nógu ánægður með hana. Í fyrsta lagi er bölvað vesen að koma þessu í tölvuna af DVD í þokkalegum gæðum til að klippa eitthvað til, svo eru myndgæðin ekkert til að hrópa húrra fyrir, og að auki ef ég set í bestu myndgæði þá koma kippir inn í myndina öðru hverju, frekar ömulegt fyrir svona dýra vél.
Þetta er kannski ágætt fyrir þá sem vilja bara getað tekið upp og sett beint í DVD spilarann enn ekki fyrir þann sem vill eitthvað vera klippa eins og mig.
Passaðu bara að það sé Firewire tengi á vélinni, og ef þú hefur áhuga á nightvision, að það sé green light nightvision, það er eitthvað color nightvision á minni, jú, jú, það virkar, en er allt í kippum svo það er eiginlega ekki hægt að nota það í video.
Annars af minni reynslu þá hafa Sony vélarnar yfirleitt komið mjög vel út.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93