Enn er bætt gráu ofan á svart

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Geirinn » Thu 02. Nov 2006 15:14

Ég sé fyrir mér Lögregluna fara í INNBROT með blá ljós og læti :lol:

"Hmm, best að forða sér.................."
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Stanky » Thu 02. Nov 2006 15:26

Geirinn wrote:Ég sé fyrir mér Lögregluna fara í INNBROT með blá ljós og læti :lol:

"Hmm, best að forða sér.................."


Ég persónulega myndi ekki hleypa lögreglu framúr mér sem væri á 150km/h með engin ljós. Myndi bara reisa við hana í staðin!



kv,
haukur
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby ValliFudd » Thu 02. Nov 2006 16:49

Schulii wrote:Það má vera að það sé rétt. Eins og ég segi þá veit ég það ekki. En þetta er bara eitt dæmi af mörgum finnst mér hérna á spjallinu þar sem mér finnst menn vera "Góðir á svölunum" eins og einn góður vinur minn orðaði það eitt sinn!
Ég sá ekki löggubílinn fyrr en hann þrusaðist frammúr mér... ég hefði EKKERT sett út á þetta ef hann hefði verið með blá ljós.. en án þeirra er þetta bara hálfvitaskapur og stóóórhættulegt...! Ég er ekki að segja að þeir megi ekki bruna á eftir einhverjum hálfvitum sko... heldur VERA MEÐ HELVÍTIS LJÓSIN! :)

Mér finnst þú heldur ósanngjarn í þessum ummælum þínum um mín skrif!
Þetta var mjöööög hættulegur og heimskulegur akstur.. Það er ekkert sem þú getur sagt um lögregluna til að réttlæta svona fíflaskap.

Kveikja á bláu babúljósunum! Þá tekur fólk eftir því þegar þeir koma á milljón frammúr manni... Eins og ég sagði, EF ég hefði skipt um akrein... Væru einhverjir á slysó núna.. It's just that simple!
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby RamLing » Thu 02. Nov 2006 20:14

Ef löggan er ekki með forgangsljós þá má hún einfaldlega ekki aka eins og hálviti !. Löggan hefur oft blikkað mig með háu ljósunum og ætlað að stoppa mig þannnig í tjékk, hef bara leikið mér við þær löglega, en stöðva um leið og þær setja bláu á.

Þetta eru ekkert nema helv... fkn... djöss... fávitar sumir sem halda að þeir eiga heimin. Tökum nú bara sem dæmi þegar hálvitanir veltu löggubílnum í hafnarfirði ... HALLÓ !

Síðan hvernig þeir ná að stúta bílunum á ótrúlegasta máta :@. HEld að þeir ættu að fara í ökukennslu..

Biðst afsökunar á orðalagi og orðbragði mínu. Þessi orð mín eiga ekki við alla lögrelguþjóna, heldur suma. Þeir eru auðvitað bara að sinna sinni vinnu
IC-464 Nissan Patrol '87 3.3TDI 44"
MO-406 Range Rover '91 3.9 V8-4sale
YM-577 Isuzu Trooper '99 3.0TDI 35"-SOLD
RR-291 GMC Jimmy '93 4.3 Vortec-SOLD
YK-403 BMW 523i '00 2.5-4sale
VS-544 Nissan Almera '00 1.8-SOLD
User avatar
RamLing
Kassabílstjóri
 
Posts: 182
Joined: Wed 21. May 2003 15:08
Location: Keflavík

Postby Los Atlos » Thu 02. Nov 2006 20:54

Ég held að menn skulu fara varlega í stóru orðin og kinna sér reglur aðeins meira.

Það er svoltið til sem heitir hálfur forgangur og heill forgangur.
Lögreglan er aðeins að biðja um forgang þegar hún er með ljósin á.
OO=[] []=OO
BMW 525ix '95
Honda CRF 450 '05
Los Atlos
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 327
Joined: Mon 25. Sep 2006 23:23

Postby ValliFudd » Thu 02. Nov 2006 21:02

Los Atlos wrote:Ég held að menn skulu fara varlega í stóru orðin og kinna sér reglur aðeins meira.

Það er svoltið til sem heitir hálfur forgangur og heill forgangur.
Lögreglan er aðeins að biðja um forgang þegar hún er með ljósin á.

einhvernvegin grunar mig að þeir hafi nú samt enganvegin fullt leyfi til að keyra eins og mofoar eins og þeir gerðu í morgun. Ég er ekki að segja að þeir geri þetta allir, enda hef ég ekki séð þetta áður. Ef þetta hefði ekki verið lögreglubíll, hefði nú alveg pottþétt einhver hringt á lögregluna til að klaga ökumanninn.

Mígandi rigning og ömurlegt skyggni.. Frekar dymmt, og allt í hvínandi botni og brunað yfir 3 akreinar í einum rykk. Ég hefði ekki farið að segja frá þessu hér ef þetta hefði verið eitthvað smotterí sko. Þeir voru að keyra eins og bavíanar. Og það er eitthvað sem þeir hafa væntanlega ekki leyfi fyrir.

Lögreglustjóri fær email um þetta mál og hann skoðar þá væntanlega ökurita og fleira og metur það eins og honum sýnist :) Ég ætla ekkert að fara að gera neitt svaka mál út úr þessu, en þetta var mjög kjánalegur akstur. Og stórhættulegur.

Það væri nú allavega furðulegt að "vernda almenning" með því að leggja hann í stórhættu :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Los Atlos » Thu 02. Nov 2006 21:36

Það er samt rétt að þeir hefðu átt að vera vera með forgangsljósin á.
Lögreglan getur alveg verið í fullum forgang án þess að vera með forgangsljósin á, ef þeir myndu lenda í óhappi yrðu þeir í sömu aðstöðu og hver annar maður.
Forgangsljósin eru aðeins til að láta vita af sér og gefa öðrum tilkinningu um það að víkja frá.
OO=[] []=OO
BMW 525ix '95
Honda CRF 450 '05
Los Atlos
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 327
Joined: Mon 25. Sep 2006 23:23

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 55 guests