Þannig er mál með vexti að strákurinn minn skráði sig hérna á spjallið en fékk aldrei staðfestingarpóst og kemst þar af leiðandi ekki inn á spjallið. Hann er búinn að borga meðlimagjaldið og fá skírteinið og allan pakkann nema aðganginn á spjallið. Hann prófaði að senda póst á einhvern sem er í admin-a hópnum en fékk ekkert svar. Einhverjar hugmyndir um hvern á að tala við í sambandi við svona hluti? Endilega koma með ábendingar og allt sem ykkur dettur í hug að geti gagnast
