Page 1 of 1

Vantar í E36

PostPosted: Tue 16. Nov 2004 16:46
by IceDev
Mig vantar:

lok í kastaragötin

sígarettukveikjara

hanskahólfsvasaljós


Svo vantar mig kannski rúðuupphalara takka eða hvort að einhver geti sagt mér hvernig ég tek hann úr

PostPosted: Tue 16. Nov 2004 22:27
by grettir
Ég á nú ekkert af þessu, en ég get sagt þér hvernig þú tekur upphalaratakkann úr þar sem minn andaðist fyrr á þessu ári (kostar btw. u.þ.b. fjögur þúsund í B&L).

Hann er einfaldlega smelltur ofaní, svo ef þú getur potað einhverju þarna á milli (eldhúshníf eða einhverju mjóu) þá ætti kvikindið að smella uppúr. Í mínu tilviki er bíllinn sjálfskiptur og þá næ ég hlífinni í kringum stöngina upp og get ýtt undir hann neðan frá, en þetta er ekkert fast og engin átök þarf til.

PostPosted: Thu 30. Dec 2004 16:59
by BMW_Owner
hanskahólfs vasaljós?? :? wtf? er það til og fer það í þetta litla tengi í hanskahólfinu?? :roll:

kv.BMW_Owner :burn:

PostPosted: Thu 30. Dec 2004 19:08
by moog
BMW_Owner wrote:hanskahólfs vasaljós?? :? wtf? er það til og fer það í þetta litla tengi í hanskahólfinu?? :roll:

kv.BMW_Owner :burn:


já... það er til og það fer í litla tengið já.