bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

[ÓE] Vél í 528 E39
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=51474
Page 1 of 1

Author:  Þórólfur [ Mon 06. Jun 2011 14:51 ]
Post subject:  [ÓE] Vél í 528 E39

Sælir Kraftsmenn

Mig vantar vél í BMW 528 E39.
Original vélin er M52TUB28 en ég íhuga einnig kaup á 2,5L eða 3L vélum.

Vinsamlegast sendið PM ef þið hafið vél til sölu eða vitið um eitthvað nothæft.

Author:  Aron [ Tue 07. Jun 2011 00:19 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

Hvað er farið í vélinni?

Author:  Þórólfur [ Tue 07. Jun 2011 13:01 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

Þeir hjá TB vildu meina að blokkin væri farin/sprungin en höfðu í sjálfu sér lítið fyrir því annað en það að heddið virtist í lagi og sama má segja um heddpakkninguna.
Eftir spjall við nokkra BMW sérfræðinga virðist sem svo að þessar blokkir fari bara ekki svo að eitthvað annað hlítur að hafa komið fyrir.

Kælivatnið var orðið verulega olíusmitað og olían vall upp upp úr vatnskassanum þegar ég komst að þessu. Knastásarnir eru rifnir og líklegt að sveifarásinn sé það þá líka, það er ekki búið að kanna ástand cylendra. Mér var einfaldlega sagt að það að byggja upp þessa vél myndi alltaf kosta meira en að kaupa notaða og skipta.

Author:  Einarsss [ Tue 07. Jun 2011 13:03 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

Þórólfur wrote:

Ég hefði áhuga á að kaupa sveifarásinn af þér ef hann er í lagi :)

Author:  slapi [ Tue 07. Jun 2011 15:49 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

úúúú , núna er að komast upp um þig Einar.
84 mm Stroke....

Annars var ég eitthvað búinn að heyra af þessu máli.
Varstu búinn að heyra í Hr.Gildnum?
Hann á að eiga M54B25 sem er eiginlega sami mótorinn og M52tu fyrir utan rafmagnsinngjöf og hugsanlega einhver smámál en líklega eini kosturinn sem ég veit af.

viewtopic.php?f=12&t=37552

Author:  Einarsss [ Tue 07. Jun 2011 16:03 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

haha, ekki alveg en bara fínt að eiga einn svona sveifarás til taks :D

Author:  Þórólfur [ Thu 09. Jun 2011 11:52 ]
Post subject:  Re: [ÓE] Vél í 528 E39

slapi wrote:
úúúú , núna er að komast upp um þig Einar.
84 mm Stroke....

Annars var ég eitthvað búinn að heyra af þessu máli.
Varstu búinn að heyra í Hr.Gildnum?
Hann á að eiga M54B25 sem er eiginlega sami mótorinn og M52tu fyrir utan rafmagnsinngjöf og hugsanlega einhver smámál en líklega eini kosturinn sem ég veit af.

http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=37552

Mótorinn er seldur fyrir nokkru síðan, hann hefur bara ekki uppfært innleggið.

Mig vantar því ennþá rokk í kaggann :?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/