Þórólfur wrote:
Þeir hjá TB vildu meina að blokkin væri farin/sprungin en höfðu í sjálfu sér lítið fyrir því annað en það að heddið virtist í lagi og sama má segja um heddpakkninguna.
Eftir spjall við nokkra BMW sérfræðinga virðist sem svo að þessar blokkir fari bara ekki svo að eitthvað annað hlítur að hafa komið fyrir.
Kælivatnið var orðið verulega olíusmitað og olían vall upp upp úr vatnskassanum þegar ég komst að þessu. Knastásarnir eru rifnir og líklegt að sveifarásinn sé það þá líka, það er ekki búið að kanna ástand cylendra. Mér var einfaldlega sagt að það að byggja upp þessa vél myndi alltaf kosta meira en að kaupa notaða og skipta.
Ég hefði áhuga á að kaupa sveifarásinn af þér ef hann er í lagi
