bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vantar bremsuslöngur hringinn í e36
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=46841
Page 1 of 1

Author:  Skúli [ Tue 07. Sep 2010 12:33 ]
Post subject:  Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Á einhver til bremsuslöngur út í dælur allan hringinn sem passa í 94 e36 325?

Hvort sem þær eru nýjar eða notaðar í lagi.

Sími 8656979 eða pm, vantar þetta strax.

Author:  JOGA [ Tue 07. Sep 2010 18:07 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Ertu ekki að tala um rörin?
Þau er betra að setja ný í. Getur beygt universal rör en annars er þetta ekkert rosalega dýrt frá IH held ég.

Author:  Axel Jóhann [ Tue 07. Sep 2010 19:23 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Hann er að tala um gúmmi bútana sem koma frá röri útí hjól.. :mrgreen:

Author:  Skúli [ Tue 07. Sep 2010 22:16 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Fór með bílinn í skoðun í dag og fékk athugasemd útá þetta. hann talaði um að það væru sprungur í þeim. Er ekki búinn að skoða þetta sjálfur en hann sagði að þetta lægi út í bremsudælurnar

Author:  gardara [ Wed 08. Sep 2010 08:52 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Ég var akkúrat að skipta þessu út hjá mér.... Verslaði vírofnar slöngur frá UUC http://www.uucmotorwerks.com/ss_brake_lines/

Author:  JOGA [ Wed 08. Sep 2010 09:22 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Það er nú samt venjulega járnið sjálft sem fer. ALgengur galli í E36. Fer í sundur í beygjunni að aftan.
Lenti í þessu með gamla 328i úti í UK.

Ef að gúmmíið er farið þá efast ég um að þú náir rörunum heilum úr nema þau séu mjög nýleg.
Festingarnar ryðga alveg saman og rörin brotna við lítið álag.

Ekkert stórmál peningalega samt að redda þessu. Aðalega vinna. Þarft að taka tankinn úr að aftan til að skipta um rörin sjálf.

Author:  SævarSig [ Thu 09. Sep 2010 22:53 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Skúli wrote:
Fór með bílinn í skoðun í dag og fékk athugasemd útá þetta. hann talaði um að það væru sprungur í þeim. Er ekki búinn að skoða þetta sjálfur en hann sagði að þetta lægi út í bremsudælurnar


Getur líka ef þú nærð hosonum úr, farið með þær í barka og látið þá smíða nýjar hosur fyrir þig, stór efa að það sé verið að tala um stóra upphæð.

En annars er nátturlega sniðugt líka að fara út í vírofnar.

Author:  Skúli [ Sat 11. Sep 2010 00:39 ]
Post subject:  Re: Vantar bremsuslöngur hringinn í e36

Já ég sé fram á að það sé hægt að ná þeim úr án þess að skemma rörin, var að skoða þetta í gær. Ég nenni ekki að eyða miklu í þetta og nenni heldur ekki að bíða eftir að fá þetta að utan, vantar bara slöngur í lagi til að fá skoðun á kaggann...á einhver þetta til ?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/