Page 1 of 1

Perusæti í afturljós á BMW 316 Sedan 1992

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 15:41
by Garri
Sælir BMW unnendur, ég er að leita að perusætum í afturljós á BMW 316 Sedan 1992, á einhver ljós sem gæti viljað selja mér þessi perusæti úr afturljósunum?
Ég er búinn að hringja í Bílstart í Garðabænum en þeir eiga sætin ekki til.
Vitið þið um einhverja sem gætu átt sætin fyrir utan þá og B&L?

Fyrirframþakkir,
Garri

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 18:21
by Bjarki
Mér sýnist stykkið kosta um 720 hjá B&L, vantar þig mörg svona.
Oft mjög þægilegt að kaupa smástykki hjá stealer'num!

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 19:38
by Jss
Bjarki wrote:Mér sýnist stykkið kosta um 720 hjá B&L, vantar þig mörg svona.
Oft mjög þægilegt að kaupa smástykki hjá stealer'num!


Uhumm, fyndinn punktur, spurning hvernig viðbrögðin verða í vinnunni á morgun :? (þ.e. ef maður sýnir vinnufélögunum þetta)

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 20:07
by moog
Bjarki wrote:Mér sýnist stykkið kosta um 720 hjá B&L, vantar þig mörg svona.
Oft mjög þægilegt að kaupa smástykki hjá stealer'num!


Úff... :roll: Bjarki dáldið grófur þarna.... :wink:

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 17:17
by Garri
Mig vantar öll 10 sætin, og kosta þau öll 8596 krónur í B&L og mér finnst það fullmikið fyrir perusæti.
Það eru fimm sæti í hvoru ljósi, þrjú af sætunum kosta 947 krónur, eitt er á 652 krónur og eitt á 805 krónur.
Svo er bara að leggja saman og margfalda með tveimur, þá er upphæðin fyrir öll perusætin í bæði afturljósin komin, og samkvæmt mínum útreikningum nemur upphæðinni samtals 8596 krónum.
Þá datt mér í hug að einhver ætti notuð ljós sem hann/hún væri ekki að nota, og vildi jafnvel selja mér sætin úr þeim.

Eru annars engar aðrar partasölur sem eru með eitthvað af BMW?

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 17:47
by arnib
Bílstart í Skeiðarási til dæmis.

Svo er nú líklegt að hann Halli hérna á spjallinu eigi þetta, gætir prufað að senda honum einkapóst.

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 18:09
by Garri
Ég var nú búinn að taka það fram að ég hafði athugað Bílstart í Garðabæ, en þeir eiga það ekki til.

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 19:27
by arnib
Abb! My bad! :?

En hitt gæti þó virkað ;)

haha

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 21:19
by Tommi Camaro
ÉG á þetta allt saman til :lol:

PostPosted: Thu 27. Nov 2003 09:10
by Guest
Tommi, hvað værir þú tilbúinn að láta þetta á mikið?