Vantar þetta í bílinn minn 535iA ´89 E34
Miðstöðvar mótorinn fór með látum um daginn.
Veit ekki hvort það skiptir einhverju máli en þetta gamla miðstöðin, ekki digital. Og ég er með loftkælingu, það skiptir víst einhverju máli!
...notabene, ég nenni ekki að koma og rífa þetta úr bíl hjá einhverjum.
Ef einhver á þetta til í þokkalegu ástandi er ég alveg til í að borga nokkrar kúlur fyrir, eitthvað sanngjarnt verð semsagt.
Það kemur alveg hiti uppúr miðstöðinni, það er bara ekkert til að blása honum.
Jafnvel ef einhver nennir að skipta svona hlut út fyrir mig fyrir t.d. "coke"-klippu eða nokkrar "kúlur" má hinn sá sami hafa samband við mig.
Ég er með smá aðstöðu í svona verk, en er ekki mikill viðgerðarkall sjálfur.
Líka ef einhver á útihitamælinn, semsagt nemann í húddinu og er til í að láta það á lítið.
Endilega hafið samband við mig í EP (einka-póst) og skiljið eftir símanúmer.
Það er í rauninni alveg ómögulegt að keyra bílinn í svona, sérstaklega í rigningunni sem hefur verið undanfarið.
Ég veit alveg að ég er búinn að vera vinna hjá Vöku og þeir eru búnir að vera með svona bíla í portinu.
Málið er bara að þetta sem mig vantar er ekki til eins og er.
Ég veit hvað þetta kostar hjá B&L, það þarf bara að panta þetta og það tekur 7-10 daga og er pínulítið dýrt, en ég enda sennilega á að panta þetta hjá B&L ef ég finn þetta ekki einhverstaðar annarsstaðar.
Á reyndar eftir að tala betur við hann í TB.
