Kristjan wrote:Hva? Á að gera bílinn ready fyrir inngöngu í Team Hnakkz?

Mér finnst nú bara ekkert að því að vera með mjög góð hljómflutningstæki í bílum. Það eykur akstursánægjuna verulega hjá mér að cruisa á þægilegum BMW þar sem ég heyri ekkert nema frábæra tónlist í frábærum græjum. Það að vera með öfluga magnara og tvær 10"keilur þýðir ekkert endilega að maður sé með einhverja hnakka tónlist á. Þetta minnir mig soldið á þegar maður segir "non-bíla fan" að maður eigi tæplega 300 hestafla bíl, þá fær maður oft skot eins og "Hvað hefuru eiginlega að gera við þetta allt?" eða "maður getur hvergi keyrt svona bíla á íslandi!" eða "Minn bíll er nú bara 78 hestöfl og kemur mér alveg frá A - B!"
Það er ekki endilega að kraftmikill bíll sé bara til að keyra hratt og botna hann á hverjum ljósum! Bara að vita af aflinu, millihröðun, framúrakstur á þjóðvegum og margt annað. Eins og með græjur, jú litla fermingartækið mitt dugar alveg til að hlusta á fréttir og heyra uppáhaldslögin mín en mér finnst samt skemmtilegra að heyra tónlist í öflugum græjum með góðum hljómburð!
Sorry með off-topicið en mér hefur bara fundist eins og það gæti einhverja fordóma gagnvart þeim sem hafa áhuga á að hafa góðar græjur í bílunum sínum!