by Schulii » Sun 21. Mar 2004 14:49
Þetta er algjör snilldarmynd. Ég fór líka að hugsa um hvað það hefði verið svalt að sjá sexuna hans Sæma hjá nýju sexunni uppí bjé og ell !!
Ég ætla ekki að fara að gera upp á milli þessara bíla. Mér finnst þeir báðir stórkostlegir hvor á sinn hátt.
Mér finnst sérstaklega aðdáunarvert hvað gamla sexan er með klassískt útlit. Ekki víst að menn hafi vitað það þegar hann kom á markaðinn fyrst hvað hann myndi eldast vel útlitslega séð.
Varðandi nýju sexuna þá verður tíminn bara að leiða það í ljós hvort þetta [Bangle] fyrirbæri sé einhver bóla sem á eftir að þykja skelfileg mistök eftir nokkur ár eða að þetta sé það sem koma skal og að BMW menn séu á undan sínum samtíma eins og ég myndi vilja segja um þá þegar gamla sexan kom á markaðinn fyrst en menn gerðu sér sennilega ekki grein fyrir þá eins og ég minntist á áðan.
Allavega, flott mynd af ólíkum ósamanburðarhæfum bílum!!
BMW 520d E61