by gstuning » Fri 24. Apr 2009 23:22
Þetta er ekkert öðruvísi enn
L-jet vs. motronic 3.1
Myndi engum heilbrigðum manni detta í hug að hann kæmist upp með AFM og vacuum kveikju á M50 vél.
Eins og ég er búinn að segja öllum,
ef ég hefði vitað að þessar tölvur væru eins og þær eru þá hefði ég aldrei keypt neina tölvu. Ekki í eitt né neitt.
Helsta vandamálið við þær er að þær hoppa á milli reita án þessa að reikna jafnóðum á milli.
t,d 5ms við 2-3k og svo 5.6ms við 3-4k , þetta þýðir að er vélin byrjar við X gjöf og 2k þá er hún ríkari enn viljað væri,
svo jafnar hún sig við miðjumarkið og byrjar að leana sig í lokin, dettur svo yfir í næsta reit og þá byrjar það sama.
þetta heitir NON INTERPOLATION. Eða það að tölvan reiknar ekki út meðal tölur á milli nokkra reita í nágrenni þess sem hún er í akkúrat núna og að hún færir ekki meðaltalið er vélin eykur snúninga eða álag. Þetta gerir það að verkum að tjúna þessa tölvu er alveg fokk ömurlegt business.
Nýju XMS tölvurnar gera þetta rétt, og í stað 16x8x16 map er núna 16x16x16 fuel map, og það er interpolation,
Ég væri sko alveg til í að tjúna svoleiðis tölvu enn þessar MOFO non interpolating tölvur eru alveg ótrúlegt pain.
Vandamálið hjá árna er að þessi tölva þegar mixtúran overall hefur verið möppuð eðlileg að þá er ekki til staðar auka bensín til að mæta snöggri þörf af bensíni þegar er gefið snögglega inn eða það er of mikið, bæði endar í hiki. VEMS átti við svipað vandamál að stríða síðasta haust sem hefur verið þægilega leyst og strákarnir eru allir með nýjustu uppfærslu. Það sem gerist hjá árna er að þegar hann stappar dollunna mjög hratt þá leanast mixtúran og það kemur hik og það töluvert.
Ég sé ekkert annað enn að auka í bensíntöfluna til að tjúna framhjá þessu þar sem að hann er að lenda í þessu, og láta svo wideband controllið taka þetta aukabensín í burtu er hann er að keyra í venjulegu krúsi, Þetta held ég að sé eina lausnin, ég reyndi hvað ég gat að tjúna tölvuna til að vera alveg tipp topp mixtúrulega séð enn eftir það hefur það sést að runna vélina bara ríka í töflunni borgar sig útaf þessu.
Er þetta leiðinlegt? Já
Eru allar tölvur framleiddar jafnar? Nei
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
