Er með þennan nokkuð stóra benz E50 ///AMG til skipta. Er helst að leitast eftir þægilegri bíl fyrir skóla svo skoða flest skipti+pening eða slétt. Smá um bílinn, myndir og það sem hefur verið gert:
Mercedes benz E50 ///AMG einn af einungis 2870 framleiddum á árunum 1996-1997
Þessi bíll kemur með öllum aukabúnaði sem var available 1996.
Tv/Nav
Sími
6 diska magasín
litað gler
tvílitt leður með rafmagni í og 3 minnum í framsætum hiti í öllum sætum
Bose hljómkerfi
Original xenon í aðal ljósum
Rafmagnsgardína í afturrúðu
tvískipt digital miðstöð og a/c
5L m119 vél úr sl500 breytt hjá AMG og á að skila 255kw/342hö og 480nm af togi
Svo auðvitað AMG púst, fjöðrun og þess háttar.
Það sem þarf að gera við hann:
Það þyrfti helst að skoða skottlok og hjólaskálarnar að aftan farið að sjást rið ekki komið í gegnum lakkið.
Mögulega fá nýtt gler á annað framljósið bilstjórameginn orðið matt hefur einhverntimann verið skipt um hitt.
Svo þarf líklega að huga að bremsudiskum bráðlega, ekki búið að setja útá það í skoðun en þarf líklega að skoða þá í framtíðinni.
Það sem er búið að gera síðan ég eignaðist hann:
Nýtt grill að framan
Skipt um bensín slöngu og síu
Skipt um vatnslás
Skipt um bremsuklossa að framan
Skipt um barka í topplúgu
Skipt um spegill bílstjórameginn
Skipt um viftureim
Fundinn leki á vökvastýri og skipt um slöngu þar, fór ágætis tími í að finna þetta
Skipt um olíu á vél og skiptingu í 172-3þús
Skipt um hanskahólf (mesta vesen sem ég hef lennt í)
Það var keyptur nýr rafgeymir sem var víst gallaður svo það fór annar í ekki nýr en skilar sínu
Skipt um loftflæðiskynjara $$
Sprautað frambretti bílstjórameginn og svuntan 3/9/12
svo voru ný dekk keypt að aftan fyrir sirka 3000km síðan geta fylgt með önnur 255/55/18 dekk með bílnum ef kaupandi vill, gúmi er víst dýrt í dag.
Bíllinn
Eins og sést hefur miklu verið eytt í hann og get ég því miður ekki klárað hann vegna skólagöngu.
Myndir:

tekin 27/4/12





Ef þið hafið áhuga eða eruð með spurningar ekki hika við að senda ep.
KV Bergur